Content


Skokk- og gönguhópur Fram




 
Skokk- og gönguhópur Fram
        Grafarholti og Úlfarsárdal
         
 

Skokk- og gönguhópur Fram í Grafarholti og Úlfarsárdal er opinn öllum sem vilja stunda holla hreyfingu í góðum félagsskap, reynda sem óreynda.

Æfingar: Æfingar eru alls fjórum sinnum í viku. Í sumar eru allar æfingar úti við. Hist er við Ingunnarskóla og gengið þaðan eða skokkað, allt eftir getu og áhuga hvers og eins.

Þjálfari: Mæja (ÍAK þjálfari) sér um æfingar auk þess að leiðbeina þeim þátttakendum sem vilja við að skipuleggja aðra hreyfingu sína, s.s. um útbúnað og áætlanir varðandi hlaup og/eða göngu. Áhersla er lögð á að skipuleggja æfingar hvers og eins eftir hans getu og óskum.

Heimasíðan: Skipulag útiæfinga verður birt vikulega á heimasíðu hópsins (http://www.skokkhopur.blog.is/blog/skokkhopur/), auk frétta af hópnum og tilkynningar vegna æfinga. Hópurinn er líka á fésbókinni!

Hvar á að mæta? Í sumar verða allar æfingar úti. Við hittumst við Ingunnarskóla kl. 17:30 og göngum eða skokkum þaðan. Við hvetjum sem flesta til að láta nú verða af því að drífa sig með í hópinn og njóta útiverunnar, hreyfingarinnar og félagsskaparins í sumar.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta
Almenningsíþróttadeild Fram

Mánudagur

Þriðjudagur

Fimmtudagur

Laugardagur

 

17:30

 

17:30

 

17:30

 

9:00

 

Þjálfari: Maja Peta Hlöðversdóttir s: 696-1988
Heimasíða hópsins:
http://www.skokkhopur.blog.is/blog/skokkhopur/

Facebook: Skokkhópur Grafarholts www.fram.is

Skrifstofa Fram Grafarholti s: 587-8800
Fram Safamýri s: 533-5600

 



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l