Frumkvöðlar í Reykjavík
Leikfimin er stunduð af kappi yfir veturinn en yfir sumarið er alltaf einhverjir sem farið út að skokka og nýta lyftingasalinn. Hópurinn hefur einnig gengið á fjöll saman og er farið á Esjuna Almenningsíþróttadeild Fram var stofnuð þann 26. mars árið 2003 og urðu Framarar því fyrstir Reykjavíkurfélaganna til að taka almenningsíþróttir upp með svo formlegum hætti. Sögu deildarinnar má þó rekja til ársins 1995, þegar Jóna Hildur Bjarnadóttir íþróttakennari hóf að standa fyrir reglubundnum leikfimistímum. Leikfimin var frá upphafi þrisvar í viku, fyrst í gamla salnum á annarri hæð íþróttahússins, sem síðar var tekinn undir skrifstofur og félagsaðstöðu og nú undanfarin ár í nýja salnum. Segja má að þessi starfsemi hafi verið í föstum skorðum síðan á hverju ári.
Á síðustu árum hefur almenningíþróttadeildin boðið upp á ketilbjöllutíma og stöðvaþjálfun sem Hilmar Þór Arnarson, IAK einkaþjálfari og íþróttafærðinemi í Háskólanum í Reykjavík, hefur haft umsjón með. Hilmar bíður einnig upp á einkaþjálfun í íþróttahúsi Fram. Frá árinu 2005 hefur Knattspyrnufélagið Fram verið með starfsemi í tveimur hverfum þ.e. Safamýrinni og Grafarholti.
Frá haustinu 2005 hefur yngri íbúum Grafarholts staðið til boða að iðka handknattleik, knattspyrnu og tae kwondo, en því miður hefur engin starfsemi verið í gangi fyrir eldri íbúa hverfisins vegna skorts á aðstöðu. Mikill áhugi er hjá íbúum Grafarholts að fá starfsemi sem hentar fyrir fullorðna og hafa fyrirspurnir þess efnis borist til almenningíþróttdeildar Fram. Í samstarfi við áhugasama íbúa hverfisins hefur deildin stofnað Skokkhóp Fram í Grafarholti. Skokkhópur Fram í Grafarholti fór af stað um miðjan september 2010. Þjálfari hópsins er Selma Birna Úlfarsdóttir, íþróttafræðinemi á 3ja ári hjá Háskólanum í Reykjavík.
Starfsemi almenningíþróttadeildar Fram er hefur aldrei verið blómlegri og iðkendur hópana eru á öllum aldri, allt frá tuttugu ára upp í sjötugt.
Guðlaugur Hilmarsson er formaður deildarinnar og hefur gegnt starfinu frá stofnun deildarinnar. Félagslegi þátturinn er einnig mjög mikilvægur. Það eru haldin Þorrablót, vorfagnaður, eitthvað gert í kringum jól og páska og svo mætti lengi telja. Einnig hefur almenningíþróttadeildin tekið þátt og stutt starfsemina innan Fram og sýnt þannig samfélagslega ábyrgð. Þór Björnsson íþróttafulltrúi Fram átti frumkvæðið að formlegri stofnun deildarinnar 2003. Reykjavíkurborg er með það í stefnu sinni að íþróttafélögin ættu að sinna almenningsíþróttum og helst hafa slíkar deildir.
Vinsæll íþróttaskóli
Eitt af verkefnum almenningsíþróttadeildarinnar er rekstur Íþróttaskóla Fram fyrir börn á aldrinum þriggja til sex ára. Skólinn var stofnaður á vegum handknattleiksdeildarinnar haustið 1993, í formannstíð Guðmundar B. Ólafssonar. Tóti [Þór Björnsson] átti frumkvæðið að því að koma þessu af stað og sá alveg um verkefnið.
Fyrirkomulagið hefur verið eins frá upphafi. 12 tíma námskeið á laugardagsmorgnum í íþróttahúsi Álftamýrarskóla og frá árinu 2005 hefur skólinn verið starfræktur í Ingunnarskóla í Grafarholti. Námskeiði eru bæði haldin á vor- og haustmisseri. Gildi starfseminnar fyrir félagið er mikið. Hún er mikilvægur tengiliður milli Fram og fólksins í hverfinu, auk þess sem skólinn skilar deildum félagsins fjölda nýrra iðkenda. Gríðarlega góð aðsókn hefur verið á undanförnum árum þar sem börn og foreldrar fara í leiki saman og gera ýmsar æfingar með áhöldum og smádóti. Kennarar skólans eru íþróttakennarar sem kappkosta við að auka hreyfifærni barnanna á sem skemmtilegastan og fjölbreytilegastan hátt.