Kæri Framari
Ég vil nota tækifærið fyrir hönd aðalstjórnar félagsins og óska okkur öllum gleðilegs afmælisárs en þann 1. maí 2008 verður Knattspyrnufélagið Fram 100 ára.
Þessi öld hefur verið félaginu gjöful, margir sigrar hafa unnist og ekki síst hefur félagið staðið fyrir miklu og öflugu uppeldis- og æskulýðsstarfi, sem við getum öll verið stolt af.
Í dag eru starfandi fimm öflugar deildir innan félagsins, knattspyrnudeild, handknattleiksdeild, skíðadeild, taekwondodeild og almenningsíþróttadeild. Jafnframt eru Framkonur starfandi sem reynst hafa félaginu ómetanlegur stuðningur undanfarin ár. Frá stofnun félagsins hefur það alltaf verið metnaður Fram að vera í fremstu röð. Núverandi staða staðfestir þann mikla metnað Fram en keppnislið félagsins er að berjast í toppbarráttu í karla- og kvennaflokki í handbolta, FRAM er núverandi deildarbikarmeistara karla í handknattleik. Fram leikur nokkuð stöðugt til úrslita í bikarkeppnum HSÍ og KSÍ. Við eignuðumst nú síðast Íslandsmeistara í taekwondo, í marsmánuði 2008, og svo mætti lengi telja.
Af þessu má sjá að engin ellimerki eru á félaginu og er uppbyggin þess í stöðugri framþróun bæði á íþróttasviðinu sem á rekstrarsviðinu. Á undanförnum misserum hefur aðalstjórn félagsins einbeitt sér að stefnumótun félagsins til framtíðar og er hluti af þeirri stefnumótun ráðning framkvæmdastjóra félagsins, íþróttastjóra, bókara og íþróttafulltrúa í Grafarholti. Nýr þjónustusamningur hefur verið undirritaður við Reykjavíkurborg sem tryggir rekstrargundvöll félagsins til næstu ára. Mótuð hefur verið afreksstefna Fram og sérstakur afreksmannasjóður stofnaður. Auknar kröfur um rekstraráætlanir deilda félagsins, stefnumótun og uppbyggingu íþróttastarfseminnar innan hverra deildar sett í fastar skorður. Jafnframt var tekin ákvörðun um að leggja grundvallaráherslu á uppbyggingu kvennaflokka félagsins og stofnun kvennaflokka í knattspyrnu á árinu 2008, í samræmi við jafnréttisáætlun félagsins.
Á aldarafmælisári félagsins verður ýmislegt gert til hátíðarbrigða. Glæsilegt þorrablót Fram var haldið þann 19. janúar sl., þar sem sérstakt afmælismerki félagsins var kynnt. Frábært konukvöld var svo haldið 8. mars sl. Firmakeppni félagins verður haldin fljótlega og nýrri heimasíðu Fram verður hleypt í loftið á vormánuðum. Sérhannaður afmælisbúningur félagsins verður kynntur fljótlega og munu allir flokkar félagsins í öllum deildum leika í slíkum búningum á afmælisárinu. Afmælisskákmót verður haldið í apríl og þann 24. apríl verður haldin sérstök afmælis- og sumarhátið í Grafarholti. Sérstakt afmælisblað Fram verður gefið út fyrir stórglæsilegt afmælishóf Fram, sem haldin verður þann 30. apríl nk. í Gullhömrum í Grafarholti, sjá nánar meðfylgjandi auglýsingu. Er staðsetningin vel við hæfi á verðandi framtíðarsvæði Fram.
Við höldum síðan upp á sjálfan afmælisdaginn 1. maí 2008 með skemmtilegri dagskrá, sbr. meðfylgjandi auglýsingu. Á árinu standa vonir til þess að samningar náist við Reykjavíkurborg um uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Úlfarsárdal, sem þjóna eiga félagsmönnum Fram, íbúum Grafarholts og íbúum í Úlfarsfelli og Úlfarsárdal. Rétt er þó að ítreka að félagið mun halda áfram íþróttastarfsemi sinni í Safamýri. Hið vinsæla árgangamót félagsins verður haldið í maímánuði. Vormót Kiwansklúbbsins Heklu fer fram og minnisvarði um Rúnar Vilhjálmsson verður afhjúpaður á árinu. Ákveðið hefur verið, í samráði við aðstandendur, að stofna sérstakan afreks- og minningarsjóð um Ásgeir Elíasson. Afmælisgolfmót Fram fer síðan fram á sumarmánuðum. Framdagurinn verður haldinn hátíðlegur í sumar og sérstakt afmælismót yngri flokka í Grafarholti. Stefnt er að vígslu gervigrasvallar í Úlfarsárdal á haustmánuðum og hið landsþekkta herrakvöld Fram verður haldið, glæsilegra en nokkru sinni. Við endum afmælisárið á útgáfa 100 ára afmælisbókar Fram og íþróttamaður og -kona Fram verða valin í fyrsta skipti.
Þessu til viðbótar eru síðan allir keppnisviðburðir félagsins, leikir í öllum flokkum og deildum Fram ásamt minni viðburðum eins og getraunakaffi alla laugardaga, námskeiðahaldi o.s.fv. Eru allir Framarar hvattir til að taka þátt í sem flestum viðburðum á árinu og að mæta á keppnisviðburði ársins. Hægt er að fylgjast nánar með dagsetningum á viðburðum, atburðum og allri starfsemi félagsins á heimasíðu okkar, www.fram.is
Knattspyrnufélagið Fram þakkar þér stuðninginn á síðustu árum en stuðningur þinn skiptir félagið öllu máli. Fram er í raun félagsmenn þess á hverjum tíma og hefur þetta stórkostlega félag notið þess að eiga frábæra félagsmenn í 100 ár sem hafa unnið ötullega að málefnum þess. Það geta allir lagt félaginu lið, þar skiptir hvert og eitt handtak máli.
Gleðilegt afmælisár.
Með Framkveðju í 100 ár,
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður Knattspyrnufélagsins Fram