
Búið er að hanna nýtt afmælismerki FRAM vegna 100 ára afmælis FRAM í ár. Merkið hannaði Ragnar Helgi Ólafsson og er ætlunin að nota þetta merki á afmælisárinu. Merkið var formlega kynnt á þorrablóti FRAM 19. janúar síðast liðinn og mæltist vel fyrir. Það er von félagsins að merkið verði notað sem mest á afmælisárinu.
Hægt er að nálgast eintak af merkinu á PDF formi með því að smella hérna.
Eins er hægt að hafa samband við skrifstofu FRAM í síma 533-5600.
Aðalstjórn FRAM