Content


Grafarholt


SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2012 Grafarholt og Úlfarsárdalur

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á gervigrasvelli FRAM í Úlfarsárdal. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.  Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla  frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  11 - 22. júní    09:00-16:00   
Námskeið 2.  25 - 06. júlí     09:00-16:00  
Námskeið 3.  09 - 20. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  23 - 27. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00  virka daga.  Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1   13 -  17. ágúst   09:00-12:00  (börn fædd 2002-2006).
Námskeið 2   13 – 17. ágúst 13.00-16.00   (börn fædd 1998-2001).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga. Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu. 

Námskeið 1.  11 -22. júní     09:00-12:00     
Námskeið 2.  25 - 06. júlí     09:00-12:00  
Námskeið 3.  09 - 20. júlí     09:00-12:00
Námskeið 4.  23 - 27. júlí     09:00-12:00 (viku námskeið).


Skráning

Skráning hefst  2. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM.
Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 8000.-
Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 16.000.-
Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 4500.-  (5 dagar).
Veittur er 10 % systkinaafsláttur og einnig er veittur 10 % afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 
Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600  skrifstofa FRAM Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is  og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar
Þór Björnsson íþróttastjóri  FRAM
Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti og Úlfarsárdal



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l