Content


Safamýri


SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2012

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir á íþróttasvæði FRAM v/Safamýri. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta borgarinnar. Námskeiðin fara fram á æfingasvæði FRAM en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús félagsins. Handboltanámskeiðið er haldið í Íþróttahúsi FRAM og næsta nágrenni ef veður er gott.  

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM


Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl.13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.  
Boðið verður upp á gæslu frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  11 - 22. júní     09:00-16:00     
Námskeið 2.  25 - 06. júlí     09:00-16:00   
Námskeið 3.  09 - 20. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  23 - 27. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).
 

HANDBOLTASKÓLI FRAM


Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00  virka daga vikunnar.  Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið     13 - 17. ágúst  09:00-12:00     

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM


Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga vikunnar. Boðið er upp á gæslu frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu.  

Námskeið 1.  11 - 22. júní    09:00-16:00     
Námskeið 2.  25 - 06. júlí     09:00-16:00   
Námskeið 3.  09 - 20. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  23 - 27. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).


Skráning

Skráning hefst 02. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is  Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM.
Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 8000.-
Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 16.000.-
Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 4500.-  (5 dagar).
Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 
Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 533-5600 milli kl 09:00 og 16:00 í Íþróttahúsi FRAM og í gegnum tölvupóst toti@fram.is.

Í von um gott samstarf í sumar
Þór Björnsson íþróttastjóri  FRAM


« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l