Strákarnir okkar fengu ekkert út úr úrslitaleiknum í 4. fl. ka á fimmtudaginn. Strákarnir mættu þó sterkir til leiks og höfðu mikla yfirburði í leiknum. Fljótlega fengu strákarnir ágæt tækifæri og stjórnuleiknum algjörlega og því leið ekki á löngu að þeir tækju forustu og var þar að verki Stefán Birgir með góðu skoti úr vítateignum. Strákarnir héldu áfram að sækja og fljótlega skorðuð þeir annað mark sem dæmt var af. Slakur dómari leiksins dæmdi vitlaust innkast en öll innköst leiksins fram að því höfðu verið meira eða minna vitlaus og því alls ekki samræmi í þeim dómi en tæknilega réttur dómur ? Það var sem sagt eitt lið á vellinum í fyrrihálfleik og geta fylkismenn þakkað góðu markverði fyrir að staðan var ekki nema 1-0 í hálleik því hann varði nokkrum sinnum frábærlega í leiknum.
Seinnihálfleikur var svipður þó FRAM liðið drægi sig full mikið aftur á völlinn þá fengur fylkismenn ekkert tækifæri í leiknum og ógnuðu marki FRAM lítið sem ekkert. FRAM stákarnir fengu nokkur góð tækifæri í seinnihálfleik og tvö dauðafæri sem við hefðum átt að nýta en allt kom fyrir ekki. Það var svo á loka sekúndu leiksins að fylkismenn skoruðu jöfnunarmarkið eftir hornspyrnu sem reyndist síðast spyrna leiksins og því varð að framlengja. Enn kom dómarinn við sögu en seinni hálfleikurinn var nærri 40 mín á sýnilegrar ástæðu. Það er skemmst frá því að segja að í framlenginunni sáu FRAM strákarnir ekki til sólar og var greinilegt að jöfnunarmarkið sat í strákunum. Fylkir gekk á lagið skoraði löglegt mark fljótlega sem áðurnefndur dómari dæmdi af án skiljanlegrar ástæðu og stuttu seinna skorðu þeir sigurmarkið eftir klaufagang í vörn FRAM. Dómarinn toppaði svo frammistöðuna með því að fær augljósa vítaspyrnu Fylkis út fyrir teig undir lok leiksins. Tap 1-2 var því niðurstaðan og mikil sorg í herbúðum okkar manna. Þeir geta samt borið höfuðið hátt og verið stoltir af frammistöðu sinni í sumar því þeir hafa spila sérlega vel í sumar og marga leiki miklu betur en á fimmtudaginn þeir eiga því mikið inni og ekki ástæða til að örvænta þó tapið væri sárt.
Haukur Hilmarsson þjálfari á heiður skilið fyrir sinn þátt í velgengni drengjanna því hann hefur gert góð hluti með þennan hóp og ber að þakka fyrir það. Haukur er nú að leið til USA til að klára flugnám og verður hans sárt saknað af drengjunum og reyndar fleirum þvi hann þjálfari líka 7. fl. ka. og 4. fl. kvenna sem á dögunum varð Íslandsmeistari.
Til hamingju drengir og takk fyrir sumarið !
Kveðja Tóti