Content

13.9.2007

7. fl. ka. í Grafarholti hefur staðið sig vel í sumar.

7. fl. ka í Grafarholti hefur verið að standa sig vel í sumar.  Í ágúst  tóku drengirnir þátt í Króksmótinu á Sauðárkróki FRAM sendi tvö lið til keppni og það var ekki að sökum að spyrja,  A  liðið var hársbreydd frá því að komast í úrslit og ef ég man rétt munaði þar einu marki og B-liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið.  Þjálfarinn Vilberg Sverrisson var ánægður með mótið og sagði að strákarnir hefðu staðið sig gríðarlega vel á mótinu og að hann sæi miklar framfarir hjá drengjunum. 



Á mánudaginn var svo lokahátið hjá flokknum í keiluhöllinni og þar hljóp heldur betur á snærið hjá drengjunum.  Landsliðið í fótbolta mætti í keiluhöllina og þar gátu drengirnir látið mynda sig með landsliðsmönnum Íslands auk þess sem það er ekki á hverjum degi sem strákar í 7. fl. frá heilt landslið í heimsókn. Það var því glatt á hjalla í loka partýi 7. fl. þegar landsliðið stillti sér upp með hópnum.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l