Content

27.10.2007

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Fram.

Það var mannmargt í hátíðarsal Fram ,þegar stjórn knattspyrnudeildarinnar sá um uppskeruhátíðina að vanda.
   Júlli Formaður sá um að stjórna herlegheitunum og Jói Fel hafði bakað þessa líka glæsilegu köku og eftir að allir bikarar og medalíur höfðu fundið eigendur sína var komið að matar og drekkutíma, Pulsurnar og kókið asamt Fram kökunni runnu nú niður í maga hvers manns með sýnilegri ánægju.  Sjáum hvernig þetta var;


  hér eru 6 og 7 flokks stelpurnar saman komnar.

  hér er stór hópur 7 og 8 flokks strákanna.

   6 flokkurinn.

  og 5 flokkurinn.

             Maggi                                   Finnbjörn   og                                      Júlli.

                 hér eru glæsileg verðlaun sem bíða eigenda sinna sem sannarlega eiga þau skilin.

              Ögmundur fékk verðlaun, besti leikmaður 2 flokks.          Jón félagi hans fékk verðlaun
fyrir mestu framfarirnar, hann var ekki á staðnum en fær sín verðlaun samt..

                                   Jobbi fék verðlaun fyrir mestu framfarir í 3 flokki.

                    hér hefur Þórir komið upp og tekið við sínum verðlaunum, besti leikmaður 3 flokks.

                                          Ingvi fékk verðlaun fyrir mestu framfarir í 4 flokki.

          og hér hefur Hörður B.  eða Höddi komið og tekið við sínum verðlaunum, besti leikmaður 4 flokks.

         hér er 4 fl kvenna með þjálfurum sínum, Aldísi lengst til vinstri og Hauki, lengst til hægri.
Þessi hópur varð Íslandsmeistari í sínum flokki.  Til hamingju stelpur !

         Áslaug var kosin besti leikmaður 4fl. og Hafdís fékk verðlaun fyrir mestu framfarirnar.

              Framdómari ársins var kosinn Bóas Börkur.

  Og á var eiginlega komið að veglegustu verlaununum, þesi bikar heitir Eiríksbikar og er veittur þeim leikmanni
sem þykir hafa skarað fram úr, bæði innan vallar sem utan. Þessum verlaunum fylgir mikil virðing og sá heppni
þetta árið var Hörður B. Magnússon!    til hamingju Höddi og vertu nú áfram stilltur og prúður drengur..

  Hátíðarsalurinn var nokkuð þétt setinn, ungir sem aldnir mættu til að fylgja sínum börnum/unglingum.

         eldhús strákarnir Gunni Palli og Tóti höfðu þarna greinilega stolist í pylsupottinn...

                 Díana og Maggi sáu um að pulsurnar og kókið kæmust fljótt í tóma maga.

          svo var komið að því að éta tertuna upp til agna..

                                        Orri               og                 Bjarki              fengu sér í svanginn.

                                        Birna                 og                   Tóti                 sáu um að koma tertunni út.


Þetta var nú það helsta sem sjá mátti og vill stjórnin þakka fyrir árið, öllum iðkendum, foreldum og öllum
þeim sem hafa hjálpað til á einn eða annan veg.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l