Content

17.12.2007

5. fl. ka. fótbolta stóð sig vel á jólamótinu um helgina.

Frábært Jólamót

Frábær árangur hjá sameinuðu liði 5.flokks karla í knattspyrnu á Jólamótinu.
 
Strákarnir voru að spila í gær á jólamótinu og var í fyrsta skipti skipað leikmönum frá Safamýrini og Grafarholti blandað saman og árangurinn létt ekki á sér standa.  Þótt menn hefðu ekki æft mikið saman þá er greinilegt að góðir fótboltamenn eru fljótir að ná saman því liðin spiluðu flottann fótbolta og var mjög gaman að fylgjast með strákunum, sem lögðu sig allir 100% fram og uppskáru eftir því.
 
Árangur liðanna  voru 7 sigrar, 4 jafntefli og 2 töp(bæði 0-1 í hörkuleikjum) og mega strákarnir vera stoltir af þessum árangri. Það voru 35 strákar(+ Raggi yfirnuddari) sem tóku þátt í þessu þó vantaði nokkra vegna veikinda, meiðsla og ferðalaga þannig að hópurinn á eftir að styrkjast en meir.
Ég vil þakka foreldrum og foráðamönum fyrir að koma og hvetja liðin en sá stuðningur er okkar áttundu maður.

Næst á dagskrá er æfinginn á þriðjudaginn og svo jólafrí til 4.jan
 
Jólakveðja
Siggi Þjálfari


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l