Strákarnir í 3. fl. ka. gerðu sér lítið fyrir og rusluðu hreinlega upp jólamóti KRR nú un helgina. Strákarnir leiku sérlega vel og unnu alla sína leiki og enduðu með markatöluna 17-1. Að sögn heimildamanna léku strákarnir við hvern sinn fingur og sérlega gaman að fylgjast með léttu og kröftugu spili þeirra.
Til hamingju drengir.