Í gær laugardag var fyrsti leikur 4fl. kvenna í 11 manna bolta, spilað á stórum velli og þessi leikur markaði því ákveðin tímamót. Þær urðu Íslandsmeistarar í fyrra í 7 manna boltanum og fengu verðlaun ásamt 4fl. karla á hófi á Grand Hotel á dögunum, sjá umfjöllun hér: http://fram.is/frettir.asp?act=1&nid=3625&did=3
Leikurinn í gær var við hið fornfræga félag ,KR og þjálfari þeirra þekkir nú til í herbúðum Fram því hann þjálfaði hjá okkur um nokkurt skeið, Stebbi kallinn var nú kominnn með sínar svarthvítu stúlkur sömu erinda og við, að vinna leikinn.
Hver hálfleikur er 35 mín og eftir 30 mín var ekkert mark komið, nokkur færi þó en eftir langa og fasta sendingu að marki KR sem markmaður þeirra náði að stöðva en boltinn hrökk frá henni ,kom þar Áslaug Eik á ferðinni og hamraði boltann í fjærhornið, sú var ákveðin þarna og í hálfleik var því 1-0 fyrir Framstelpur.
Þrátt fyrir hrikalega hálfleiksræðu þjálfara KR sem heyrðist langt útá völl, þá var vart liðin mínúta af seinni þegar Áslaug skoraði aftur fyrir Fram, eftir þvögu í teignum náði hún öruggu skoti í marknetið, 2-0.
Á 50 mínútu skoraði KR, Bergdís Arnardóttir gerði það eftir langa sendingu inn í teiginn og hún fékk nægan tíma til að stýra boltanum framhjá Eydísi sem hafði þó vaktað teigin ansi vel auk þess sem vörn okkar með Karó,Hafdísi og Kristínu hafði haldið aftur af öllum sóknum KR. Jæja 2-1 og nú varð að naga skjaldarrendurnar ,hamra járnið,sverfa til stáls,láta kné fylgja kviði,höggva í sama knérunn,og halda áfram...
Það gerði svo sannarlega hún Franzi Schulte okkar sem var sem píla í sókninni og sú hefur hraðann og snerpuna, spændi upp völlinn með boltann hvað eftir annað og var óheppin að skora ekki en lagði upp nokkur frábær færi sem gáfu mörk. Á 62 mínútu kom svo langþráð þriðja mark okkar og viti menn, Áslaug var snögg og snör í teignum eftir fyrirgjöf og stýrði boltanum með glæsilegu skoti framhjá markmanni KR og inn fyrir stöngina, skoraði þrennuna þarna og nú var kátt í höllinni, 3-1 og aðeins 8 mín eftir.
Það nægði Framstelpum til að setja eitt enn, Kristín kom á ferðinni í teiginn og dúndraði inn boltanum á 66 mínútu og því voru úrslit ráðin, 4-1 fyrir Framstelpur í sínum fyrsta 11 manna boltaleik, þetta var nú gaman og allt liðið átti heiðurinn af þessum sigri, vörnin góð, miðjan dugleg að hreinsa frá hættusvæðum og sóknarmenn ákveðnir og fylgjandi, það skiptir máli og Bjarney Gunnarsdóttir þjálfari var ánægð með þetta.
Vonandi verður þessi hópur grunnurinn að góðu fylgi kvenna í knattspyrnu hjá Fram og víst er að knattspyrnudeild yngri flokka hefur lagt mikið til að kvennaknattspyrna rísi upp aftur sem aldrei fyrr. Þið stelpur eruð því að hefja feril ykkar sem líklega endar ekki fyrr en við hlið Margrétar Láru í landsliðsbúningi á Laugardalsvellinum, verið þolinmóðar og þið munið uppskera eins og þið sáið, Íslandsmeistarabikarinn í fyrra sannar það.
kv,bbb