10.4.2008
Skýrsla formanns skíðadeildar Fram
Veturinn hefur verið okkur gjöfull hvað skíðamennskuna varðar. Við hófum skíðun í byrjun desember og síðar snjóaði svo ummunaði. Ennþá eru snjóalög þannig að við egum að geta æft langt fram í maí.
Ég hef talað við Einar Bjarna sem hefur starfað um stundarsakir í fjallinu við stjórnun svæðisins og við munum reyna að halda Fram lyftunni opinni eins lengi og hægt er. Það er mikilvægt að nýta snjóinn þegar hann gefst, sérstaklega þegar hann er við bæjardyrnar eins og núna.
Við störfuðum mjög náið með Breiðabliki og sköffuðu þeir þjálfara en á stjórnarfundi var ákveðið að skíðadeild Fram tæki þátt í kostnaði við þjálfara. Það mál er í farvegi.
Farin var ferð til Flachau í Austurríki með fjölskyldur og yngri krakkana þar sem bræðurnir Arnar og Sigurður ásamt þóru sáu um þjálfun.
Elstu krakkarnir fóru í æfingaferð til Geilo í Noregi með Sindra sem þjálfara. Undirritaður kom að báðum ferðum og tókust þær afburða vel.
Við héldum eitt mót fyrir 9-12 ára með aðstoð Blika og tókst það vel.
Okkar keppendur kepptu út um allt land og má þar nefna Ísafjörð, Dalvík og Akureyri fyrir utan Skálaflell og Bláfjöllin.
Að mannvirkjamálum
Skálinn komst í tengingu við vatn og gerir undirritaðu ráð fyrir því að Orkuveitan greiði þann kostnað sem hlaust af því verkefni. Undirritaður þurfti að fara ansi oft í fjallið á haustdögum til að ýta því verkefni áfram. Skálinni er í nokkuð góðu standi en háloftið þarf að fá andlitslyftingu og er verið að fá smið í málið.
Enn og aftur var slugsað við að koma Eldborgagilinu í gang en sem dæmi var ekki hengt á beygjulyftuna fyrr en seint í febrúarmánuði og svæðið var svellt af troðslu. Ekki er auðvelt að halda úti félagi við þessar aðstæður eins og öllum er kunnugt um.
Snjóleysi var ekki um að kenna heldru dapri stjórn á ástandinu.
Miðað við þá upplyfun sem er í gangi þá ætti eðlileg krafa Framara að ITR byggi skála á völlunum við Suðurgilið þótt það sé ekki á óskalista undirritaðs.
Eitthvað hefur fjölgun félagsmanna látið á sér standa en enginn nýr félagsmaður bættist í hópinn. Þetta er áhyggjuefni sem skoða þarf en nú er svo komið að skálinn okkar stendur ónotaður þar sem engin starfsemi fer fram í honun.
Nú er svo komið að undirritaður hefur viðrað þær hugmyndir við aðalstjórn að breyta rekstri deildarinnar úr núverandi mynd. Það gæti sem dæmi gerist á þann máta að sameinast öðru íþróttafélagi. Þetta er allt á hugmyndastigi en ljóst að ekki verður við þessa stöðu búið. Óskastaða undirritaðs er eitt félag á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Fækkun iðkenda er ekki bara í röðum Framara heldur virðist þetta vera að angra öll félögin. Haukar sem óskuðu eftir samstarfi við okkur á síðasta vetri virðast ekki vera til lengur. Það er því löngu tímabært að féögi setjist yfir þessi mál til að verjast kostnaðarauka þeirra sem stunda sportið því laun þjálfara koma úr vösum þeirra sem sækja til þeirra að stærstum hluta.
Núna að öðru.
Við höldum Framleikana á laugardaginn og er þegar komin mikil þátttaka í þá frá hinum félögunu þetta verður upplyfun yngstu krakkana og okkur til sóma.
Andrésar andar leikarnir fara svo fram á Akureyri eins og alltaf og hlakkar undirritaður til.
Síðan vil ég hvetja alla til að stunda skíðn mikið á meðan snjórinn gefur og sýna að við viljum skíða í fjöllunum, líka eftir páska
Áfram Fram
Smári Ríkarðsson
« Til baka |
Senda á Facebook