Loksins er hægt að nálgast eintak á MP3 formi af nýja FRAM laginu á vefnum okkar. Lagið heitir Áfram Fram og er sungið af Helga Björnssyni.
Það var Karl O. Olgeirsson sem samdi lag og texta en hægt er að sjá textann hér fyrir neðan.
Þú sækir lagið með því að smella hérna.
ÁFRAM FRAM
Þú og ég,
við gefumst aldrei upp og sækjum
fram á veg
því sókn er okkar vörn
Framtíðin
er fagurblá og hvít rétt eins og
himininn
við Reykjavíkurtjörn
Áfram Fram, nú fram fyrir skjöldu, látum finna hvað í okkur býr!
Áfram Fram því aldrei má víkja, höldum áfram í harðasta gír!
Áfram Fram, nú fram fyrir skjöldu, látum finna hvað í okkur býr!
Áfram Fram, okkar bíður sigur nýr.
Ég og þú,
við höldum okkar striki þótt við
þekkjum nú
gleði, svita og tár
Í góðum leik
við gefum ekkert eftir, nei,
við stöndum keik
í önnur hundrað ár!