Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda (Nordiske skolespellen) er nú haldið í 60. sinn og í þetta skiptið er það haldið í Kaupmannhöfn. Þátttökulið eru frá Reykjavík, Helsinki, Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Keppt er í knattspyrnu drengja, körfubolta stúlkna og frjálsum íþróttum, leikarnir fara fram dagana 26-30 maí.
Reykjavík tekur nú þátt í þriðja sinn og er hér um að ræða úrvalslið drengja fæddir 1994 sem eru í grunnskólum Reykjavíkur. Við FRAM-arar erum stoltir af því að eiga 2 stráka í þessu úrvalsliði Reykjavíkur en það eru þeir
Stefán Darri Þórsson Álftamýrarskóla og Antonio Ndong Nsambi Háteigsskóla. Reykvíkingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu mótið 2006 þegar það var haldið í Helsinki og í fyrra urðu þeir í 2 sæti í Ósló.
Gangi ykkur vel drengir !