Content

27.6.2008

6. flokkur karla á Shellmóti í Vestmannaeyjum

Miðvikudagur:
Fengum frábæra siglingu með Herjólfi, veðrið lék við okkur og strákarnir voru allir félaginu til sóma. Spegilsléttur sjór og sólskin alla leiðina. Komum til Eyja rétt fyrir kl. 15.00 og komum okkur fyrir í Kiwanishúsinu, þar sem væsir ekki um okkur. Skelltum okkur strax aftur í siglingu út í helli þar sem spilað var fyrir okkur á saxafón... strákunum fannst það geðveik!!
Að siglingu lokinni tók við rútuferð um eyjuna þar sem við fengum frábæra leiðsögn og strákarnir hlustuðu með athygli.  Eftir matinn var lítið annað að gera en að skríða í pokann sinn og undirbúa næsta dag. Spenntir strákar sofnuðu á endanum !

Fimmtudagur.
Leikir dagsins gengu misvel, sigrar og töp á víxl eins og gengur og gerist á stórmótum.
A-liðið átti fyrsta leik við Stjörnuna og voru illilega teknir þar. Leikurinn byrjaði illa og okkar menn ekki alveg komnir í gírinn. Þeir komu síðan sterkir inn í næsta leik gegn Val...girtu sig í brók og sigruðu 3-2. Mörkin áttu Magnús Óliver, Dagur Snær og andstæðingarnir hjálpuðu til við það þriðja. Síðasti leikur dagsins var við Gróttu en sá leikur var erfiður og gat farið á báða vegu enda sambærileg lið en leiknum lauk með sigri Fram 3-2. Mörkin skoruðu Sæmundur, Aron Elí og Aron Breki

B-liðið spilaði sinn fyrsta leik við Selfoss. Þetta var góður leikur og Framarar voru sterkari en undir lokin rúllaði boltinn óheppilega inn í mark okkar manna og endaði með jafntefli 1-1. Markið skoraði Magnús Ingi. Næsta leik áttu þeir við Þróttara og þar náðist ekki sami takturinn og leiknum lauk með stóru tapi okkar manna 0-7 sem fóru beigðir en ekki brotnir af velli. Síðasta leikinn áttu þeir við KR og komu sterkir inn, spiluðu mjög vel og unnu vel saman. Uppskáru eins og þeir sáðu og sigruðu 7-1. Mörkin skoruðu Egill 1, Óliver 1, Þorri 1 og Magnús Ingi 3 mörk og fegnu eitt gefins frá andstæðingum.

C-lið átti sinn fyrsta leik við KA og þar var allt í járnum í fyrri hálfleik en gáfu eftir í síðari hálfleik. Leikurinn endaði með tapi 4-1 og markið átti Daníel Þór. Næsta leik áttu þeir við IA og mættu þar sterkum strákum. Leikurinn gekk vel í fyrri hálfleik en dalaði í seinni hálfleik og endaði með tapi 7-0. Síðasta leik áttu þeir svo við Þór og áttu þar fullt í fangi við sterkt lið Þórsara og döluðu í seinni hálfleik sem endaði með tapi  7-1 en mark okkar gerði Edvard Dagur.

D-liðið spilaði sinn fyrsta leik við Þór og var það nokkuð jafn leikur  en Þórsarar jöfnuðu í blálokin og endaði því með jafntefli 1-1. Markið skoraði Kjartan.. Næsti leikur var gegn ÍR og voru Framarar miklu betri, Mörkin skoruðu Emil 1, Kjartan 2, Brynjar 1 og Kristófer 2. það skal tekið fram að liðstjórar og fararstjórar voru einstaklega glæsilegir í þessum leik (að sögn fararstjóra) Síðasta leikin áttu þeir við Selfoss og var þetta baráttuleikur og fengum fullt af færum og áttum leikinn en á ögurstundu náðu Selfyssingar að pota inn boltanum. Fararstjórar ekki eins glæsilegir þennan leikinn.

Mótssetning eftir kvöldmat. Skrúðganga frá barnaskólanum og marserað niður að Týsvelli. Mikil og góð stemning, boðhlaup og þrautir eins og hver og einn vildi og var mikil keppni í hugum margra sem vildu helst ekki stoppa. Héldu svo heim í hús nokkuð sáttir við daginn.

Okkar bestu kveðjur að sinni
frá fararstjórum og þjálfara


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l