Content

28.6.2008

6. fl. ka. á Shellmóti í Eyjum

Föstudagur
Skemmst frá því að segja að veðrið lék við alla í dag, sólskin og blíða í Eyjum og allir í góðum gír. Vaknað snemma, morgunmatur tekinn og brunað í leiki dagsins.

A-lið. Fyrstu leikur dagsins við Þróttara hófst með skyndilegum skelli, fengum á okkur víti rétt eftir að sjálfur Mike Riley dómari leiksins hafði flautað til leiks og Þróttur skoraði örugglega úr þeirri vítaspyrnu. Eftir það var á brattan að sækja og  Þróttarar sterkari  og í hálfleik var staðan orðin 4-0 þeim í hag. Áfram héldu Þróttarar að sækja og áttu nokkrar skyndisóknir og í lok leiks var staðan orðin 9-2. Mörkin skoruðu Aron Elí og Aron Breki

Annar leikurinn var við KR-inga sem voru okkur erfiðir og áttu áttum við frekar dapran leik þar. Leiknum lauk með sigri KR 7-1 en það mark fengum við gefins eftir góða pressu frá Reyni Frey. Síðasti leikur dagsins var gegn Víkingum og þar áttu okkar menn mikið í leiknum en gekk ekki að koma boltanum í netið. Staðan 2-0 í hálfleik og leiknum lauk með sigri Víkinga 4-0.

 B-lið. Mættu KR-ingum í fyrsta leik. Mikið jafnræði var með leiðunum en KR náði að setja 2 mörk í upphafi leiks og var það okkar mönnum ofviða að jafna þrátt fyrir mikla baráttu. Framarar voru sterkari í sienni hálfleik en náðu þó ekki að skapa sér færi. Leiknum lauk því með tapi 2-0.  Næst mættum við Fjölnismönnum. Þetta var hörkuleikur þar sem Fram hafði undirtökin framan af leiknum. Fjölnismenn komust svo óvaænt yfir í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik tóku okkar menn öll völd og náðu að jafna sterkt lið Fjölnismanna með glæsilegu marki frá Agli Hlé og bætti síðan Daníel Helgi þrusugóðu marki við. Undir lok leiks náðu svo Fjölnismenn að jafna eftir mjög spennandi leik og endaði því 2-2. Síðasti leikur dagsins var gegn FH. Þetta var hörkuleikur og börðust okkar menn eins og ljón, spiluðu grimmt eins og andstæðingarnir. Leiknum lauk 4-2 og mörk okkar skoruðu Daníel Helgi og Egill Hlér.

C-lið. Þeir áttu glymrandi góðan dag í dag. Áttu sinn fyrsta leik við ÍR-inga. Andstæðingarnir stóðu aðeins í okkar mönnum fram eftir fyrri hálfleik en þegar líða tók á leikinn óx okkar mönnum ásmegin og staðan orðin 6-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik héldu þeir áfram og spiluðu mjög vel og komu boltanum í mark andstæðinganna 8 sinnum í viðbót. Leiknum lauk með stórsigri 14-0. Mörkin skoruðu Einar Marteinn 6, Daníel Þór 5, Edvard 1, Þórður 1 og Arnsteinn 1. Næsti leikur var Stjörnuna og héldu strákarnir okkar uppteknum hætti og burstuðu auðvelt lið Stjörnunnar. Í hálfleik var staða okkar manna 3 mörk gegn engu og í seinni hálfleik héldu þeir sig á sigurbraut og bættu við 5 mörkum. Mörkin skoruðu þeir Arnsteinn 2, Þórður 2, Einar Marteinn 1, Daníel Þór 2 og Atli 1.

 D-lið Virkilega erfiður dagur hjá okkar mönnum. Fyrsti leikurinn var við ÍA2 og töpuðu okkar menn 11-0 í erfiðum.  Í raun fátt annað um það að segja  en að liðstjórar stóðu sig vel..þokkalega fallegir á hliðarlínunni. Næsti leikur var við HK og endaði 6-0....enn ein þrautargangan fyrir okkar menn. Síðasta leik áttum við við Þrótt 3 og endaði 5-2. Mörkin skoruðu Emil og Kjartan en leikurinn var nokkuð jafn  og áttu þeir þó nokkra möguleika í leiknum... Hér er orðin spurning um að skipta út Gunnari fararstjóra!!

Sundferð í lok dags, góður matur, landsleikur á móti pressuliði þar sem Sæmundur  Sven var útnefndur okkar maður og stóð hann sig ljómandi vel. Að þessum leik loknum var kvöldvaka í höllinni þar sem stemningin var gífurlega mikil, sungið, fararstjórar og þjálfarar látnir taka þátt í þrautakeppni og hvöttu strákarnir okkar menn óspart. Örþreyttir á glaðir strákar lögðust til hvílu sáttir í lok dags.

 Með kveðjur frá okkur öllum.

 

 



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l