Content

12.8.2008

Strákarnir í 5. fl. ka. hafa staðið sig vel í sumar

Strákarnir í 5. fl. ka. eru búnir að standa sig vel í sumar , erum búnir að leika 32 leiki á ísl.móti,  flokkurinn í heild sinni , sigra 23 , 2 jafntefli og 7 töp , alls eru um 45 guttar að taka þátt í mótinu í sumar .
D lið er búið að tryggja sig í úrslit á Ísl.móti en þeir eru efstir , ekki tapað leik , C lið getur tryggt sig í næstu viku og eru efstir líka  og hafa tapað 1 leik  fyrsta leiknum og unnið rest , A - lið er í séns en þeir eru í 3 sæti þegar einni umferð er ólokið en 3 sæti gefur sæti í úrslitum.

Frammistaðan á N1 var líka mjög góð og vorum við með 5 lið, A- B -C - D og E , eða um 40 stráka. Reiknast mér að um 70 % af leikjum flokksins enduðu með sigri FRAM og vorum við í kringum 12 sæti að meðaltali en alls voru 32 lið á mótinu í hverju liði, þannig að við erum mjög ánægðir .  Auk þess var öll framkoma og hátterni drengja sem og foreldra til fyrirmyndar.

Flokkurinn hittist í dag í Safamýrinni til að horfa á Ísland á ÓL og fá popp og djús , síða er æfing á eftir , allir saman Grafarholt og Safamýri - D - lið reyndar að spila gegn KR þannið að þeir koma ekki-
en framundan spennandi tímar.

Kveðja Aðalsteinn



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l