Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar
FRAM
Knattspyrnudeild Fram heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína
fimmtudaginn 25. September kl.17.30 í Íþróttahúsi Fram við Safamýri.
Nokkrir leikmenn yngri flokka verða heiðraðir, allir leikmenn yngstu flokka fá viðurkenningu, Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir mestar framfarir, og Framdómari ársins útnefndur.
Veitingar verða að sjálfsögðu glæsilegar, eins og alltaf á uppskeruhátíðum deildarinnar. Allir knattspyrnumenn Fram eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum.
Kærar kveðjur
Stjórn Knattspyrnudeildar FRAM