Content

17.9.2008

Helgina 5- 7 sept. léku C og D-lið FRAM í 5. fl. karla til úrslita á Íslandsmótinu í fótbolta.

Helgina 5- 7 sept. léku C og D-lið FRAM í 5. fl. karla til úrslita á Íslandsmótinu í fótbolta. 
Strákarnir stóðu sig frábærlega í úrslitakeppni og geta þeir borið höfuðið hátt.

C-liðið
Fram-Þróttur 1-1 Fyrirháfleikur var ekki vel leikinn hjá okkur og voru þróttarar betri og var eins og við vorum ekki tilbúnir í leikinn. Við fengum mark á okkur og útlitið ekki gott. Í síðariháfleik þá fór allt annað lið inná völlinn og spiluðum við flottan fótbolta við náðum að jafna með stórglæsilegu marki og fengum svo tvö dauðafæri undir lokinn til þess að tryggja okkur sigurinn en það gekk ekki eftir. Flottur leikur hjá strákunum í síðari og sýndum við í þeim háfleik að við erum án efa eitt besta liðið á landinu þegar við spilum okkar bolta.

Fram-Þór 6-0 Þetta var aldrei spurning og kláruðu strákarnir þennan leik fagmanalega. Við héldum áfram allan leikinn og unnum sangjarnan sigur. Það sem gladdi augað var fallegt samspill milli manna og komu úr þeim falleg mörk.

Fram-Þróttur Hlutkesti. Já það var kastað upp hverjir spila til úrslita á morgun(sem mér finnst skrítið fyrikomulag). Því miður datt það ekki okkar meginn og endum við því í 3.sæti á Íslandsmótinu og er það frábær framistaða hjá strákunum og efast ég ekki um að þeir geta unnið hvaða lið á landinu þegar þeir spila sinn bolta.

D-lið

Fram- Keflavík 3-1 liðið spilaði vel í þessum leik og átti sigurinn skilið. Við komust yfir og sóttum og sóttum en fengum svo eitt mark á okkur gegn gangi leiksins. Við héldum áfram að spila okkar leik og náðum að skora tvö mörk í síðariháfleik. Þetta var flottur leikur og var því aðeins úrslitaleikur í næsta leik eftir.

Fram-Þróttur 0-2  menn voru ekki alveg tilbúnir í þennan leik og voru á hálfum hraða í fyriháfleik og fengum við tvö mörk á okkur. Við spiluðum miklu betur í síðari og vorum óheppnir að ná ekki að skora því við fengum nokkur góð tækifæri.
Við erum samt sáttir við framistöðu strákana í sumar og erum við 3.besta D-liðið á öllu landinu samkvæmt Íslandsmótinu og er það glæsilegt hjá okkur.

Kveðja Þjálfarar 5. fl .ka.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l