Landsbankadeildin - Lokaumferð
Keflavíkurvöllur laugardagur 27. september kl. 16:00
Fram í Keflavík
Fram mætir Keflavík á laugardaginn. Keflvíkingar hafa átt frábært tímabil, verið í efsta sæti deildarinnar frá miðju móti og stóðu sig vel í UEFA-bikarnum. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna í Laugardalnum 2-0 með tveimur mörkum Þórarins Kristjánssonar.
Fram fékk síðast stig í Keflavík árið 2004, en tapaði 2005 og 2007. En það er enn lengra síðan Fram vann þar, eða 1989! Þá skoraði Pétur Ormslev sigurmark FRAM, 0-1, í miklum regn- og rokleik.
Fram vann Keflavík síðast í Deildinni árið 2001 í Laugardal og síðast í Keflavík árið 1989. Þá eru tveir framherjar Keflvíkinga, þeir Guðmundur og Þórarinn, nánast með mark í leik í áskrift gegn Fram.
Í fyrra höfðu Keflvíkingar 2-1 sigur. Þórarinn Kristjánsson gerði 1 mark en Hjálmar Þórarinsson jafnaði fyrir Fram. Það var svo Baldur sigurðsson (nú í Noregi) sem gerði sigurmark Keflvíkinga í síðari hálfleik. Liðin mættust ekki 2006, þar sem Fram var í rannsóknarleyfi í 1. Deild, að fjalla um byggðamál og læra ný afbrigði af varnarleik.
Fram vantaði 1 stig í Keflavík í 17. umferð 2005, og hefði fimmta jafnteflið í röð verið vel þegið daginn þann. SVo fór þó ekki, því Keflvíkingar unnu 2-1. Fram átti síst minna í leiknum úti á velli en gekk illa að skapa sér færi. Hörður Sveinsson (sem er nú aftur komin í Keflavík eftir dvöl hjá Silkeborg, Danmörku) og Guðmundur Steinarsson gerðu mörk Keflavíkur, en það var Andri Fannar Ottóson sem gerði mark Fram. Mark Andra Fannars var síðasta deildarmark hans á ferli sínum með Fram.
Keflavík og Fram gerðu fjögur jafntefli í röð í Keflavík frá 2000-2002
og 2004. Þessir leikir voru góðir fyrir Þorbjörn Atla Sveinsson
Framara og Guðmund Steinarsson Keflvíking. Þorbjörn gerði 3 mörk fyrir
Framara í þessum leikjum, áður en hann lagði skóna á hilluna 2006.
Guðmundur hefur gert enn betur, eða 5 mörk. Guðmundur lék með Fram árið 2003, þegar Keflvíkingar voru
í rannsóknarleyfi í 1. Deild.
Fram heimsótti Keflavík í 9. umferð 2004 og varð 1-1 jafntefli. Þórarinn Kristjánsson kom Keflvíkingum yfir eftir tæpan hálftíma eftir glæsilegan einleik. Það var svo Jón Gunnar Gunnarsson sem jafnaði fyrir FRAM í síðari hálfleik með góðu skoti. Þetta var fyrsti leikur Fram undir stjórn Ólafs Kristjánssonar, sem tók við liðinu á miðju ári af Ion Geolgau.
Keflvíkingar léku í 1. Deild árið 2003, en 2002 varð 1-1 jafntefli. Adolf Sveinsson (nú Þrótti R) kom Keflavík yfir rétt fyrir leikhlé, en Fram átti síðari hálfleikinn. Þó kom bara eitt mark, þegar Þorbjörn Atli Sveinsson sendi boltann inn eftir þrumuskot frá Ágústi Gylfasyni (nú Fjölni).
Hafi leikurinn 2002 verið svekkjandi, þá er erfitt að finna orð yfir leikinn 2001. FRAM var betri aðilinn mest allan leikinn, en Haukur Ingi Guðnason (nú Fylki) kom Keflavík yfir snemma leiks. Þorbjörn Atli jafnaði fyrir Fram, og svo kom Viðar Guðjónsson Fram yfir. Rétt fyrir bæði mörk FRAM misnotuðu Framarar vítaspyrnur, fyrst Þorbjörn Atli og svo Ágúst Gylfason. Svo fengu Keflvíkingar vítaspyrnu, og jöfnuðu, 2-2. Það var Guðmundur Steinarsson sem skoraði úr vítinu.
Árið 2000 var mikið fjör þegar Fram kom í heimsókn í 15. umferð. Guðmundur Steinarsson kom Keflavík yfir eftir rúmar 20 mínutur með marki úr víti, en Þorbjörn Atli og Sigurvin Ólafsson komu Framí 2-1 fyrir leikhlé. Guðmundur snarsneri leiknum við strax í upphafi seinni hálfleiks, með 2 mörkum, en það var svo komið að Fram að fá víti 20 mínutum fyrir leikslok, og Sigurvin jafnaði, 3-3.
Fram vinnur ekki oft í Keflavík, þó liðið kræki stundum í stig þar. Áður er nefndur sigur Fram árið 1989, og svo vann FRAM 2-0 árið 1987, með marki Péturs Arnþórssonar og sjálfsmarki Keflvíkinga - mun það hafa verið fyrsti sigur Fram í Keflavík þann áratuginn...
Árið 1988 vann FRAM Deildina með 49 stigum af 54, og tapaði 2 stigum í Keflavík, í 1-1 jafnteflisleik í 4. umferð. Guðmdundur Steinsson gerði mark Fram, en Grétar Einarsson Víðismaður gerði mark Keflvíkinga. Þetta var svekkjandi því 2 mörk voru dæmd af Framí þeim leik, en Fram svaraði með því að vinna næstu 12 leiki í röð og vinna Íslandsmótið í 15. umferð.
Ein besta viðureign félaganna í Keflavík er án efa undanúrslitaleikur í Bikarnum árið 1989. Fram komst í 2-0 og það var Guðmundur Steinsson sem var heitur þetta kvöld og setti þrennu áður en yfir lauk. En það var Ragnar Margeirsson, sem byrjaði lætin eftir 10 mínutur, skoraði með skalla af miklu harðfylgi. Undir lokin komu Keflvíkingar funheitir til baka og settu 3 kvikindi, en það dugði ekki, FRAM vann 3-4. Fram varð svo bikarmeistari með 3-1 sigri á KR, með 2 mörkum Guðmundar og 1 frá Pétri Ormslev.
Stuðningsmenn Fram: Það er kominn tími til að stökkva á lappirnar og taka á málunum! ALLIR TIL KEFLAVÍKUR!!!! ÁFRAM FRAM!!!!
JEJ