5.fl.kk. hefur staðið í ströngu síðastliðnar tvær helgar og staðið sig virkilega vel.
Yngra árið spilaði helgina 30.jan - 1.feb og svo sannarlega hægt að segja að strákarnir hafi komið mér og öðrum á óvart á þessu móti. Gríðarlega barátta og leikgleði einkenndi strákanna og augljóst að þeir hafa tekið miklum framförum. Sérstaklega gaman var að sjá að það voru allir að þora að sækja á markið, prófa ýmsa hluti sem þeir hafa verið að gera á æfingum og engin feiminn við að gera mistök en þannig taka menn jú mestum framförum. Verð þó sérstaklega að hrósa liðinu fyrir góða stemmningu, frábæran móral og gott viðhorf.
Eldra árið spilaði svo um síðastliðna helgi, helgina 6 - 8. feb 7 leiki og stóðu strákarnir gríðarlega vel.
Leikirnir fóru eins og hér segir.
Fram-Þróttur2: 19-9 Fram-ÍR2: 35-8 Valur-Fram: 15-26
Fram-FH3: 15-14 Stjarnan-Fram: 15-18
Fram-Selfoss: 17-12 Fram-FH: 13-15
Það sem flestir tóku eftir þegar horft var á liðið okkar spila var gott hugarfar og hve skemmtileg og góð stemmning var í strákunum. Þeir voru staðráðnir í að halda uppi góðri stemmningu og báráttu í leikjunum og þeir gerðu það svo sannarlega. Það er hreinlega ekki hægt að velja neinn mann mótsins heldur verður liðið í heild sinni fyrir valinu. Það sást greinilega að þegar liðið var á fullu og allir að berjast að þá á ekkert lið séns í okkur.
Virkilega gaman er fyrir þjálfarann og aðra að sjá hve miklum framförum strákarnir hafa tekið og á það við um alla í flokknum. Þeir hafa verið að mæta vel á æfingar leggja sig alltaf allir fram á æfingum og það er augljóslega að skila sér vel þegar komið er í leiki. Strákarnir eiga gott hrós skilið fyrir sína frammistöðu því bæði yngra og eldra ár eru að spila úrslitaleiki á sínum mótum. Ef vel verður haldið utan um þessa stráka að þá er engin spurning um að hér eru framtíðarleikmenn meistaraflokks karla í Fram.
Áfra
m Fram. 
Fullt af flottum myndum á heimasíðu Jóa Kristins.
www.123.is/frammyndir