Fram mætti í gær Fylki í undanúrslitum bikarkeppni 3.flokks kvenna. Um sannkallaðan stórslag var að ræða því þarna mættust tvö efstu lið deildarinnar og í húfi sæti í úrslitaleiknum. Fylkisstelpur brugðu á það ráð að tvo leikmenn Fram úr umferð strax frá fyrstu mínútu, þær Stellu Sigurðardóttur og Karen Knútsdóttur. Það var því ljóst að mikið myndi mæða á hinum fjórum útileikmönnum. Elísa Viðarsdóttir var fjarverandi í liði Fram í gær vegna meiðsla. Það kom því í hlut tveggja ungra stelpna að bera uppi sóknarleik Framliðsins, Hafdís Iura á yngra ári í 4.flokki og Kristín Sverrisdóttir á yngsta ári í 3.flokki. Varnarafbrigði Fylkis kom Framstelpunum ekki í opna skjöldu því þær byrjuðu af krafti og komust meðal annars í 5-2. En eftir það náðu Fylkir að jafna og jafnt var á flestöllum tölum í fyrri hálfleik en Fram þó alltaf skrefinu á undan. Í hálfleik var staðan enn jöfn 14-14.
Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik, háspennuleikur þar sem Fylkir komst í fyrsta skipti yfir í leiknum í stöðunni 20-21. En Framstelpurnar sýndu gríðarlegan karakter og gáfust ekki upp. Í lok leiks sigldu þær framúr og unnu að lokum gríðarlega góðan tveggja marka sigur á sterku liði Fylkis. Lokatölur voru 27-25. Þrátt fyrir að hafa verið tekin úr umferð allan leikinn var Stella Sigurðardóttir markahæst með 12 mörk. Hafdís Iura skoraði 5, Þær Karen Knútsdóttir, Kristrún Njálsdóttir og Kristín Sverrisdóttir skoruðu 3 mörk hver. Þá skoraði Anna María Sigurðardóttir 1 mark af línunni. Sunneva Einarsdóttir varði oft á tíðum mjög vel í markinu. Þá voru þær Gunnihildur Emilsdóttir og Áslaug Haraldsdóttir feyki öflugar í vörninni. Það er því ljóst að stelpurnar spila í úrslitum á sunnudaginn n.k. í Laugardalshöllinni við Stjörnuna. Leikurinn hefst kl 19:00. Að þessu sinni eru þær einu fulltrúar Fram þessa bikarhelgina og við viljum þá hvetja alla Framara til að fjölmenna í Höllina á sunnudaginn og hvetja stelpurnar til sigurs. Áfram FRAM