27.2.2009
Samningamál: Hjálmar Þórarinsson framlengir
Hjálmar Þórarinsson hefur framlengt samning sinn við Fram til 2010. Hjálmar hefur leikið með Fram sl. tvö keppnistímabil og staðið sig vel. Það er Fram mikið gleðiefni að hafa því framlengt við Hjálmar.
Hjálmar Þórarinsson er fæddur 16. október 1986. Hann er sóknarmaður og er alinn upp í Þrótti Reykjavík. Hjálmar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Þrótti í 1. Deild árið 2002, þá 16 ára gamall. Hjálmar lék með Þrótti í þrjú ár, eða til 2004. Alls lék Hjálmar með Þrótti, 13 leiki í Efstu Deild og gerði í þeim 2 mörk (2003), og 31 leik í 1. Deild og gerði í þeim 7 mörk (2002 og 2004).
Hearts í Skotlandi fékk Hjálmar til liðs við sig haustið 2004. Hjálmar náði að leika 4 leiki með Hearts þá um veturinn, en lenti utan við liðið veturinn 2005-2006 í kjölfar yfirtöku Litháískra fjárfesta, sem gerði Hearts kleift að kaupa urmul af leikmönnum. Í kjölfarið var Hjálmar á reynslu hjá AIK í Svíþjóð og Aalesund í Noregi. Loks var Hjálmar lánaður til Raith Rovers í skosku 2. Deildinni í September 2006. Hjálmar stóð sig vel með Raith Rovers og skoraði 2 mörk í 5 leikjum í Oktober og Nóvember.
Hjálmar gekk til liðs við Fram í janúar 2007, en Fram fékk leikmanninn lánaðan frá Hearts í 1 ár með forkaupsrétt að þeim tíma loknum.
Hjálmar byrjaði vel með Fram og skoraði mark í sínum fyrsta leik gegn Víkingi, sem var svo dæmdur Fram tapaður. Hjálmar skoraði reyndar í þremur fyrstu leikjum sínum með Fram: Í Deildarbikarnum 2007 gerði hann eitt mark gegn Fjölni (2. leikur) og tvö mörk þegar Fram lagði Þrótt (3. leikur).
Hjálmar lék 17 leiki með Fram í Landsbankadeildinni 2007. Hann var í hópi markahæstu manna með 7 mörk. Hjálmar gerði sitt fyrsta Deildarmark fyrir Fram í Keflavík í 6. umferðinni. Hann byrjaði tímabilið sem framherji en fór fljótlega yfir á vinstri kant. Hjálmar gerði eitt eftirminnilegasta mark mótsins gegn Keflavík á Laugardalsvellinum í 15. umferð, með þrumuskoti utan teigs.
Hjálmar gerði svo nýjan samning við Fram eftir tímabilið, og gilti sá út 2009. Hann lék alla 12 leiki Fram í Reykjavíkurmóti og Deildabikar og gerði 6 mörk.
Hjálmar er margreyndur unglingalandsliðsmaður og hefur leikið 6 U21 landsleiki, 10 U19 landsleiki, og 17 U17 landsleiki. Hjálmar skoraði 4 mörk fyrir U19 ára landsliðið og 12 mörk fyrir U17 ára liðið. Hjálmar er annar markahæstur með U17 ára landsliðinu frá upphafi, en sá markahæsti er Þorbjörn Atli Sveinssson Framari með 17 mörk.
Hjálmar var einn fjögurra leikmanna Fram sem lék alla 22 leiki liðsins í Landsbankadeildinni 2008. Hann gerði sex mörk fyrir Fram í sumar og hefur nú gert alls 13 mörk fyrir Fram í Landsbankadeildinni (2007 og 2008). Hjálmar gerði auk þess eitt bikarmark í sumar og var það hans fyrsta á ferlinum hér á Íslandi.
Alls hefur Hjálmar leikið 52 leiki í Efstu Deild og gert 15 mörk fyrir Þrótt og Fram.
Leikir með meistaraflokki Fram (1.10.2008): 58
Fyrsti mfl. leikur: 8. febrúar 2007, gegn Víkingi R, Reykjavíkurmóti
« Til baka |
Senda á Facebook