3.3.2009
FRAM og KSÍ í heimsókn í Grafarholti
Knattspyrnudeild FRAM og KSÍ heimsóttu Grafarholtið síðastliðin föstudag.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna og María B. Ágústsdóttir landsliðsmarkvörður heimsóttu skóla í Grafarholti ásamt fulltrúum frá FRAM. Vel var vel tekið á móti þeim bæði í Sæmundarskóla og Ingunnarskóla þar sem þau komu færandi hendi og gafu fótbolti ásamt því að kynna fyrir krökkunum töfra knattspyrnunnar. Sýnt var nýtt og hressilegt myndband með kvenna landsliðið Íslands og vakti það mikla lukku meðal nemenda enda eru stelpurnar glæsilegar fyrirmyndir í fótbolta. Knattspyrnudeild Fram heldur úti yngri flokka starfi í Grafarholtinu og hefur starfið farið þar vel af stað enda mikill knattspyrnuáhugi, bæði hjá strákum og stelpum. Með þessu framtaki vonumst við til að fá enn fleiri iðkendur til að æfa fótbolta og ekki síst að sjá fleiri stelpur á fótboltavellinum á komandi árum.
Knattspyrnudeilda FRAM þakkar KSÍ sérstaklega fyrir að koma að þessu verkefni með okkur.
ÁFRAM FRAM
« Til baka |
Senda á Facebook