Content

3.3.2009

BIKARMEISTARAR - MYNDIR

Fram varð nú á sunnudaginn bikarmeistari í 3.flokki kvenna eftir sigur á Stjörnunni í hörku leik. Þetta var annað árið í röð sem þessi lið mættust í úrslitunum en í fyrra var það Stjarnan sem hafði betur.

Okkar stelpur voru staðráðnar í að hefna fyrir úrslitin frá því í fyrra og byrjuðu af krafti og komust í 3-1. Þá virtist sem þær slökuðu aðeins á og Stjarnan náði að jafna. Stjarnan hafði svo yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og leiddi með 2-3 mörkum það sem eftir lifði hálfleiksins. Framvörnin var ekki nógu öflug og var staðan í hálfleik 14-16 fyrir Stjörnuna.

Síðari hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri endaði, framan af leiddi Stjarnan áfram. En um miðbik hálfleiksins kom góður kafli hjá Framstelpunum og þær komust yfir. Mest náðu þær þriggja marka forskoti en Stjarnan náði að minnka niðrí eitt mark þegar um hálf mínúta var til leiksloka. En Framstelpurnar héldu boltanum út leikinn og fögnuðu sætum eins marks sigri 32-31.

Stelpurnar hafa oft spilað betur en liðið sýndi mikinn karakter að ná að vinna þennan leik því oft á tíðum framan af leik virtist ekkert ætla að ganga upp hjá liðinu. Stelpurnar eru vel að titlinum komnar, á leiðinni í úrslitin slógu þær út tvö af efstu liðinum Fylki í undanúrslitum og KA í fjórðungsúrslitunum.

Markaskorunin í leiknum var eftirfarandi: Karen Knútsdóttir 12, Stella Sigurðardóttir 9, Elísa Viðarsdóttir 4, Anna María Sigurðardóttir 3, Áslaug Haraldsdóttir 2, Elín Rut Erlingsdóttir 1 og Hafdís Iura 1. Sunneva Einarsdóttir varði 21 skot í markinu.

Karen Knútsdóttir var valin maður leiksins af sérstakri dómnefnd.

Við óskum stelpunum innilega til hamingju með titilinn og gaman verður að fylgjast með þeim í baráttunni um deildarmeistaratitilinn á næstunni. Þar eiga þær tvo hörkuleiki framundan. Við Fylki á heimavelli 10. mars kl 20:45 og við Stjörnuna á útivelli viku seinna 17.mars kl 19:00.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá sunnudeginum.

photo
Efri röð: Sigurgeir Jónsson, Einar Jónsson, Gunnhildur Emilsdóttir, Kristrún Njálsdóttur, Stella Sigurðardóttir, Karen Knútsdóttir, Katrín Steinunn Antonsdóttir, Hafdís Iura, Kristín Helgadóttir, Soffía Lára Snæbjörnsdóttir, Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Guðmundur Þór Jónsson.
Neðri röð: Elín Erlingsdóttir, Áslaug Haraldsdóttir, Sunneva Einarsdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Anna María Sigurðardóttir, Kristín Sverrisdóttir.

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo

photo







Áfram FRAM


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l