Kæru Framarar
Síðasta vor fór undirritaður ásamt Söndru Baldvinsdóttur formanni skíðadeildar Breiðabliks á fund með öllum þjálfurum og reyndum að koma þeim málum á hreint fyrir vorið. Alpagreinanefnd Blika tók svo við þeim kaleik og leiddi þau mál til lykta. Vel gekk að manna í stöður. Í þessum viðræðum kom upp sú hugmynd að starfa með ÍR við þjálfun elsta hópsins og varð það ofan á. ÍR ingar hafa verið hvað harðastir af Reykajvíkurfélögunum að bjóða upp á þrekþjálfun á sumrin og fengu okkar krakkar inni hjá þeim í þeim efnum. Undirritaður óskar þess að þessu samstarfi verði viðhaldið ef nokkur kostur er á.
Vel hefur verið mannað í þjálfarahópnum og þjónustan við æfingakrakka með besta móti.
Skíðamennskan byrjaði með ferðum norður á Sauðaárkrókinn í haust. En hóparnir dreifðust eftir því hver þjálfarinn var og vildi halda. Opnað var í Bláfjöllum fyrir áramót en því miður var lítil skíðamennska um jólin.
Snjóalög sem stendur eru fín og boða góða möguleika á skíðun um páska.
Ekki var farin skipulögð ferð til útlanda á vegum félaganna sökum ytri aðstæða en sett hefur verið saman nefnd til að skipuleggja slíkt á næsta vetri.
Við héldum eitt stórsvigsmót fyrir 9-12 ára með aðstoð Blika og tókst það vel.
Okkar keppendur kepptu út um allt land og má þar nefna Ísafjörð, Dalvík og Akureyri fyrir utan Bláfjöllin.
Að mannvirkjamálum
Skálinn hefur staðið sig ágætlega en betur má ef duga skal. Lagt var af stað í sumar með að skrúfa niður parket á gólfinu á svefnlofti. Hugmyndir eru um að leggja parket ofan á þessar plötur þegar viðgerðir utanhúss eru í höfn. Undirritaður fór með Arkitekt hússins Guðmundi Kr Guðmundssyni og fór yfir málið en breytinga er þörf á hönnun hússins. Ástæðan er sú að vatn hefur komið inn, sérstaklega suðvesturgafli en þar eru sperrur sem virðast draga vatn inn í óhagstæðum veðrum.
Hluti af rafmagnslögnum hefur verið endurnýjaður en klára þarf það verkefni.
Félagið lagði út í miklar endurbætur á brunakerfinu í skálanum og hefur innbrotskerfi verið keypti til að láta vita ef eitthvað gerist.
Félagið hefur borið nokkurn kostnað af þessum framkvæmdum á síðasta starfsári en undirritaður lítur á það sem viðhald eignar og er það eitt af okkar hlutverki sem félag.
Ljóst er að félagar í deildinn þurfa að reikna sér helgi og nokkur kvöld í vor í það að leggjast í viðhaldsverkefni á skálanum eins og málun og endurnýjun.
Enn og aftur var slugsað við að koma Eldborgagilinu í gang en sem dæmi var ekki hengt á beygjulyftuna fyrr en seint í febrúarmánuði og svæðið var svellt af troðslu. Ekki er auðvelt að halda úti félagi við þessar aðstæður eins og öllum er kunnugt um.
Varðandi fjölgun í deildinni þá hefur verið lagt út í að prenta bækling með hvatningu til barna að koma í íþróttina. Dreifing þessa var í skóla í hverfum Fram. Lítið hefur gengið að ná í börn með þessum hætti og betur má ef duga skal. Fjölgun hefur verið meira í Breiðablik og má ætla að einhver hluti þeirra sem hugsanlega væru á leið í íþróttina hafi lent þeim megin.
Fram hefur stutt myndarlega við samstarfið við Breiðablik. Sá stuðningur getur ekki haldið áfram með þeim hætti án frekari skoðunar. Eðlilegt verður að telja að markmiðssetning verði sett fram og skriflegur samningur gerður um framhaldið. Fram hefur hingað til notið þeirrar einskæðu gæða að hafa ekki þurft að axla ábyrgð á rekstri skíðaþjálfara heldur greitt eingöngu þátttökugjöld iðkenda. Þessu var breytt á árinu og kom Fram með fjármagn inn í samstarfið til að sýna að ekki hafi leigið á félaginu til að standa straum af þessu.
Aðalfundur verður að taka ákvörðun um framhaldið og varða leiðina sem fara á í framtíðinni en mikilvægt er að hafa þjónustuna við keppendur sem besta.
Félagið stendur vel en fjöldinn í því er ekki nægur að mati undirritaðs. Deildin þarf því að skoða út fyrir ramman og skoða hvort frekara samstarf eða sameining geti verið kostur.
Stundum skíðinn og söfnum félögum í deildina ef við getum.
Áfram Fram
Smári Ríkarðsson