3.flokkur kvenna varð í gærkvöldi Deildarmeistari með því að leggja HK nokkuð örugglega að velli 27-21 í Digranesi. Þetta er sama lið og varð á dögunum Bikarmeistari eftir sigur á Stjörnunni í Laugardalshöll.
Stelpurnar eiga nú einn leik eftir í deildinni og eru með 26 stig í efsta sæti en ekkert lið á lengur möguleika að ná sama stigafjölda og Framliðið hefur. Tímabilið byrjaði ekki með neinum glæsibrag hjá stelpunum, liðið þurfti að fara í gegnum umspil til að vinna sér rétt til að leika í 1.deild eftir að hafa einmitt tapað fyrir liðið HK í forkeppninni. Fram tapaði einnig tveimur af þremur fyrstu leikjum sínum, en þá vantaði nokkra lykilmenn í liðið. Síðan þá hafa stelpurnar nú unnið 12 deildarleiki í röð og samtals 16 leiki í röð ef tekið bæði leikir úr deild og bikar.
Liðið hefur vaxið gríðarlega á tímabilinu og það sem helst hefur gerst er að sífelt fleiri leikmenn hafa komið inn í liðið og stigið upp þegar á hefur þurft að halda. Vitað var fyrir mót að liðið væri skipað sterkum einstaklingum en liðið sem heild hefur náð betur og betur saman eftir því sem á mótið hefur liðið og lítur mjög vel út fyrir komandi átök í úrslitakeppninni.
Fram mun líklegast mæta liði ÍR í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en ÍR vann 2.deild nokkuð sannfærandi. Deildarmeistaratitillinn var góður bónus fyrir stelpurnar en þær eru einbeittar að ná þriðja og síðasta titlinum sem í boði er, sjálfum Íslandsmeistaratitlinum.
Við viljum endilega hvetja sem felsta til að mæta á leiki stelpnanna í úrslitakeppninni sem hefst eftir páska, því þarna eru á ferðinni FRAMtíðarstjörnur.
Hægt er að skoða myndir frá leiknum inn á
http://frammyndir.123.is/