2.4.2009
Opnir tímar fyrir hverfisbúa í líkamsrækt í Íþróttahúsi FRAM
OPNIR TÍMAR FYRIR HVERFISBÚA
Íþróttafélögin í hverfunum okkar hafa ákveðið að taka höndum saman og standa fyrir opnum íþróttatímum fyrir hverfisbúa á öllum aldri, þeim að kostnaðarlausu. Lofsvert framtak íþróttafélaganna til að efla virkni fólks á erfiðum tímum og þar með að auka lífsgæði íbúanna.
Íbúar í Bústaðahverfi, Laugardal og Háaleiti eru hvattir til að láta þetta tækifæri ekki úr greipum sínum renna og stunda alvöru líkamsrækt í húsakynnum íþróttafélaganna í hverfunum.
Knattspyrnufélagið Fram
Leikfimi/líkamsrækt alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00 – 13:00 í Íþróttahúsi FRAM Safamýri 26.
Þjálfari er Hilmar Arnarsson einkaþjálfari.
Knattspyrnufélagið Víkingur
Innanhússfótbolti á miðvikudögum frá kl. 10:00 – 11:00.
Að auki geta gestir nýtt sér líkamsræktaraðstöðuna í Víkinni alla virka daga frá kl. 09:00 – 15:00.
Glímufélagið Ármann
Frjálsar íþróttir á þriðjudagmorgnum frá kl. 10-11:30 í umsjá Þóreyjar Eddu Elísdóttur.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Badminton alla mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10.30 - 11.30.
Knattspyrnufélagið Þróttur
Innanhúsfótbolti í Laugardalshöll á mánudögum og fótbolti á gervigrasinu í Laugardal á föstudögum frá kl. 10:30 – 11:30.
Um er að ræða tilraunaverkefni til 1. júní nk.
Við bendum að auki á fjölbreytta dagskrá félagsmiðstöðva fyrir fullorðna í hverfinu. Dagskrár félagsmiðstöðvanna má finna á www.reykjavik.is undir Laugardalur og Háaleiti.
« Til baka |
Senda á Facebook