Content

16.4.2009

Glæsilegur sigur Framara á Haukum í úrslitakeppninni í kvöld !!

Framarar hófu leik í úrslitakeppninni í kvöld gegn Deildarmeisturum Haukum á heimavelli þeirra að Ásvöllum í Hafnarfirði.
Þótt Haukamenn hefðu klárlega fengið skýr fyrirmæli um að berja á mótherjum sínum þá fannst manni kanski ekki ástæða til að taka þau fyrirmæli svona bókstaflega, allavega varð manni nóg um strax í fyrri hálfleik.

En leikhléið notaði Einar Jónsson þjálfari Fram til að koma sínum mönnum í gírinn og láta einbeitinguna ekki klkka, og þótt Haukarnir virtust hafa tögl og hagldir á tímabili, með 4-5 mörkum yfir , þá var ekki stíllinn Framara að leggjast í kör, heldur náðu þeir að vinna sig inn í leikinn og einhver stórkostlegasti leikkafli fór nú í hönd, fjölmörgum áhorfendum Fram til mikillar gleði.

Framarar unnu Hauka með 4ra marka mun, 32-28 og kláruðu leikinn með hreint æðislegum lokamínútum þar sem hver leikmaðurinn eftir öðrum sýndi snilldartakta, alger unun að horfa á hvernig menn unnu saman og hve frumkvæði, öryggi og baráttan var mikil,  þetta var snilld !

Saman mynda þeir Viggó Sigurðsson fyrrum Haukamaður og Einar Jónsson fyrrum Haukamaður mikið og gott teymi sem hefur komið miklum og jákvæðum straumum í alla Framara, svo einbeittir og einlægir eru þeir í vinnu sinni fyrir sitt nýja félag, Fram.   

Nú er ekki allt búið enn, leikur tvö er á mánudagskvöldið kemur og sá leikur er úrslitaleikur fyrir Haukana, þeir verða að vnna til að tryggja þriðja leikinn, ekkert jafntefli er í bókunum, Framarar komast í úrslitin með sigri.

Það þarf því vart að segja mörg orð um mikilvægi þess leiks fyrir bæði liðin og ef áhorfendur fjölmenna í Safamýrina þá getur þarna orðið stórkostleg skemmtun, allavega fyrir annað liðið.

Takið því mánudagskvöldið frá góðir Framarar og verið velkomnir Haukamenn í húsið, fáum hvatningu og jákvæðni frá áhorfendabekkjunum, gefum dómurum frið til að vinna sína vinnu og látum handboltann njóta sín!

Allir áhugamenn um handbolta eru velkomnir, gerum upp veturinn með hvelli og skrautsýningu og megi besta liðið vinna þessa úrslitakeppni !       Körfubolti hvaaað  !!!

kv, bbb.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l