Content

21.4.2009

Benedikt Októ Bjarnason valinn í úrvalslið Reykjavíkur í fótbolta

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda (Nordiske skolespellen) er nú haldið í 61. sinn og í þetta skiptið er það haldið í Stokkhólmi Þátttökulið eru frá Reykjavík, Helsinki, Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Keppt er í knattspyrnu drengja, körfubolta stúlkna og frjálsum íþróttum, leikarnir fara fram dagana 25-29 maí.

Reykjavík tekur nú þátt í fjórða sinn og er hér um að ræða úrvalslið drengja fæddir 1995 sem eru í grunnskólum Reykjavíkur. Við FRAM-arar erum stoltir af því að eiga dreng í þessu úrvalsliði Reykjavíkur í knattspyrnu en Benedikt Októ Bjarnason Álftamýrarskóla var valinn að þessu sinni. Reykvíkingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu mótið 2006 þegar það var haldið í Helsinki og hafa staðið sig vel undanfarin ár.
Gangi þér vel Benedikt.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l