Úrslitakeppni yngri flokka lauk nú um helgina nema hjá 4.fl. B-liða sem var frestað.
Við erum stolt af því að geta sagt að Fram var með 6 lið sem komust í ústlitakeppnina.
4.fl. kv. A-lið endaði í 7.sæti í deildinni og þurfti því í umspil á móti Stjörnunni sem endaði í til að komast í úrslitakeppnina. Það tókst þeim þar sem þær unnu Stjörnuna 30-21 eftir góðan leik. Í úrslitakeppninni ,8 eftstu liða, mættu þær Fylki en töpuðu þeim leik 23-19 og luku þar með keppni.
4.fl. kv. B-lið endaði í 2.sæti í 1.deild og mættu Fylki sem endaði í 1.sæti í 2.deild. þetta var hörkuspennandi leikur og úrslit réðust ekki fyrr en eftir tví framlengdan leik. Fram stelpurnar töpuðu þar með einu marki 17-18 og voru þar með úr leik.
4.fl.ka . A-lið endaði í 3.sæti í sínum riðli og lenti því á móti HK í úrslitakeppninni. Fram strákarnir unnu sannfærandi sigur á HK. 32-27. Þar með voru þeir komnir í 4ra liða úrslit. Þar var spilað gegn Gróttu, æsispennandi leikur sem fór í framlengingu og Grótta sigraði með einu marki sem kom beint úr aukakasti eftir að leiktíma lauk. En þá var samt eftir leikur um 3.sæti og hann var á móti FH. Þetta var jafn og spennandi leikur sem endaði með sigri okkar manna 30-29. Þar með endaði 4.fl A-liða í 3.sæti á islandsmótínu Til hamingju með það strákar. 
Þjálfari 4fl er Haraldur Þorvarðarson, en Sissi Jónsson og Bjarki Bó stýrðu þessum leik, vegna anna hjá Halla.
4.fl. ka. B-lið Endaði í 2.sæti aðeins 1 stigi á eftir Grótttu. Þeir spiluðu við Hauka í 8 liða úrslltum og unnu þá mjög sannfærandi 26-17 og fóru því í 4ra liða úrslit. Eins og áður sagði frestaðist úrslitakeppnin hjá þeim en fer væntanlega fram fljótlega. Það verður örugglega spennandi að fylgjast með henni því þarna eru efninlegir strákar á ferðinni.
3. fl. Kv. (unglingaflokkur) enduðu í 1.sæti í deildinni og eru því deildarmeistarar. Þær unnu HK nokkuð örugglega í úrslitakeppninni 30-24 og mættu því næst Fylki í 4ra liða úrslitum. Eftir jafnan og spennandi leik náðu Fylkisstelpur að vinna 25-27. Þar með spilaði Fram um 3.sæti á móti KA. Þeim leik töpuðu þær 20-32 . Veikindi lykil leikmanna settu þarna strik í reikninginn .
3.fl ka. Endaði í 2.sæti í deildinni aðeins 1 stigi á eftir Þór Ak. Þeir mættu FH2 í úrslitakeppninni og unnu þá 36-34. Þá var komið að mæta Selfoss í 4ra liða úrslitum og sá leikur var æsispennandi en vannst á lokamínútunum 33-30 Þar með voru þeir komnir í úrslitaleikinn á móti ÍR.
Þeim leik verður nánar lýst nánar í næstu frétt .!!