Content

27.4.2009

3. fl FRAM Íslandsmeistarar eftir æsispennandi lokasekúndur !!

Ótalmargir Framarar  lögðu leið sína í Víkingsheimilið kl 17.oo í dag og urðu vitni að hreint mögnuðum lokamínútum í úrslitaleik 3fl. karla.milli FRam og ÍR.
Þarna léku sigurliðin frá í undanúrslitunum í gær, Fram vann Selfoss og ÍR vann Þór.

Framarar byrjuðu vel og komust 3 - 4 mörkum yfir og leiddu allan fyrri hálfleikinn.   ÍR ingar tóku leikhlé eftir 3 mínútur og 3 sekúndur, þá
 stóð ekki steinn yfir steini hjá þeim.
En svona gekk fram í seinni hálfleik, Róbert Aron, Matthías Daðason, Bjarki Bó , Arnar Birkir og Hafþór voru á fullu gasi, Raggi á línunni og vörnin með Atla Steinar var hrikaleg,og Atli tók nú upp á þeim andskota að fara að skora líka, nokkuð sem Einar Jóns Þjálfari var gasalega ánægður með. Ragnar Gústafs var alveg meiriháttar á línunni og skoraði gríðarlega mikilvæg mörk.

ÍR ingar misstu svo mann útaf með rautt spjald eftir ljótt brot og Haffi okkar fékk svo  sína þriðju brottvísun og fór uppí stúku.
Í 55 mínútur voru Framarar yfir en þá dró til tíðinda, ÍR ingar vel studdir af Arnóri í markinu, sem var hreint frábær í seinni hálfleik, fóru að saxa á forskotið og jöfnuðu þarna á 55 mínútu, og komust svo marki yfir og fór nú að fara um nokkra Framara..

En góð útspil Einars þjálfara að setja óþreyttan mann í hægra hornið sem setti 2 mörk kom okkur yfir á ný.

Enn jafna ÍR ingar en við komumst aftur marki yrfir og ÍR ingar hefja sókn og ein og fjörutíu eftir, þeir fá aukaköst, skjóta í stöng og ná frákastinu og skora og jafna 35-35 og nú voru 20 sekúndur eftir og við förum í sókn, fáum aukakast og Einar þjálfi tekur leikhlé...  úff erum við að fá framlengingu og dramatík ??

Jæja, aukakastið og Robbi dúndrar á markið en Arnór ver glæsilega og nú héldum við að þetta væri búið.. en boltinn fer útaf hliðarlínunni og Matti er snar og snöggur að átta sig og hendist eftir boltanum, tekur stöðu á hliðarlínunni og nær að henda á Bjarka sem kemur á ferðinni, rétt nær að góma boltann þegar hann hendist inní teig og vippar á markmanninn.....  lengsta vipp sem nokkurn tímann hefur verið að detta og enn eru 2 sekúndur þegar boltinn lendir í gólfinu og inn...  blííng, tíminn rennur út og við höfum sigrað !!! 

Áhorfendur trúa vart sínum eigin augum, þetta gerðist svo snöggt, en strákarnir taka stríðsdansinn og enda í stórri hrúgu á miðju gólfinu, þeir eru orðnir Íslandsmeistarar á svona líka svakalegum lokamínútum og lokasekúndum... Hver gæti látið sig dreyma um ótrúlegri leik og strákarnir eiga vart eftir að gleyma þessum sekúndum í náinni framtíð.

Þegar bikarinn fór á loft varð allt vitlaust og fögnuðurinn rosalegur, enda geysivel mætt á pallana og fyrir það vil ég þakka ykkur kæru áhangendur FRAM að koma og hjálpa til, svo sannarlega var hjálp í ykkur !!


Myndir úr leiknum eru svo á myndasíðu Jóa okkar Kristins, sem í allan vetur hefur mætt á hina fjölmörgu
leiki og myndað á eigin kostnað.   myndasíðan hans er:   www.123.is/frammyndir    og endilega fylgist
með nýjum myndaseríum frá honum.   Takk Jói fyrir veturinn, enn er þó ekki allt búið því Framstelpur byrja úrslitarimmuna við Stjörnuna á Þriðjudaginn kemur.

Til hamingju strákar í 3 flokki og til hamingju Einar Jónsson með frábæran árangur í vetur !



aftari:  Einar Jóns þjálfari- Róbert Aron , Atli Steinar ,Hafþór,Ragnar Freyr,Matthías,Ari, og Ásgeir Bogi
fremri:  Arnar Birkir, Bjarki fyrirliði, Guðni markmaður, Elías, Valtýr Már markmaður og Guðmundur .


bbb


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l