
Samningar hafa tekist um að Sjóvá verði aðalbakhjarl og samstarfsaðili FRAM næstu þrjú árin. Samningurinn er við félagið í heild þannig að allir flokkar í öllum deildum félagsins munu bera merki Sjóvá á búningum sínum á samningstímanum.
Markmið Sjóvá er að styðja FRAM í íþróttalegu og uppeldislegu hlutverki félagsins og mun vinna með FRAM að uppbyggingu félagsins í Grafarholti. Sérstök áhersla verður lögð á forvarnir sem er ríkur þáttur í starfsemi Sjóvá með það markmið að tryggja öryggi iðkenda, starfsmanna og gesta.
Samningurinn var kynntur og undirritaður í FRAMhúsinu í dag. Á myndinni hér til hliðar má sjá þá Þór Sigfússon forstjóra Sjóvá og Kjartan Ragnarsson varaformann FRAM undirrita samninginn.