Rúmlega fimmtíu strákar frá Fram öttu kappi á síðasta Íslandsmóti vetrarins sem fram fór i Vestmannaeyjum fyrir rúmri viku síðan. Sjö lið frá Fram spiluðu í mótinu, 3 úr Safamýri og 4 úr Grafarholti. Liðin stóðu sig gríðarlega vel, bæði b-lið (úr Grafarholti) og c-lið (úr Safamýri) unnu mótið. Hér að neðan má finna umfjöllun um gengi liðana úr Safamýri og myndir frá motinu. Væntanleg er svo umfjöllun umfjöllun um gengi liðanna úr Grafarholti.
A-lið

Efri röð: Sissi þjálfari, Sigurður Björn, Guðjón Erlendur, Elias Orri.
Neðri röð: Andri Þór; Arnar Ingi, Daníel Þór
A-liðið spilaði í 2.deild eftir að hafa verið mjög nærri því að vinna 2.deildina á síðasta móti og spila í 1.deild, en allt kom fyrir ekki. Einhver sjóriða virtist vera í strákunum í fyrsta leik á móti Stjörnunni sem þeir töpuðu. Í næsta leik voru strákarnir búnir að ná úr sér mesta hrollinum og unnu HK nokkuð örugglega. Strákarnir unnu einnig KA með nokkrum mun og voru þar að spila glimmrandi bolta. Þá var komið að leik gegn erfiðasta liðinu, ÍBV sem hafði verið að lenda í toppsætunum í 1.deild á fyrri mótum. Í þeim leik var vörnin eins og klettur og markvarslan góð þar fyrir aftan. Strákarnir voru óheppnir að missa þann leik niðrí jafntefli. Síðasti leikurinn var svo gegn nágrönnum okkar í Þrótti og þann leik unnu strákarnir eftir að hafa verið undir allan leikinn, Danni markmaður varði víti frá Þrótturunum þegar tíminn var búinn. Niðurstaðan var 2.sæti í þessu móti. Fínn endir á góðum vetri hjá strákunum, þeir sýndu það á deildarbikarmóti á miðjum vetri að þeir hefðu átt fullt erindi að spila í 1.deildinni, en á því móti unnu þeir nokkur af bestu liðunum í 1.deild og einungis innbyrðis markatala kom í veg fyrir að þeir spiluðu um verðlaun.
C-lið 4

Efri röð: Eiður Andri, Dagur Snær, Matthías, Sissi þjálfari
Neðri röð: Arnór, Aron Elí, Daníel Helgi (á myndina vantar Birki)
Eftir sigur í 1.deild á síðasta móti voru strákarnir staðráðnir í að halda þeirri sigurgöngu áfram. Fyrsti leikur var gegn Þrótti og vannst sá leikur eftir nokkuð basl framan af. Næst var leikur við FH sem hafði lent í 2.sæti á síðasta móti, þrátt fyrir að strákarnir hafi oft spilað betur vannst sá leikur. Þá var komið að stórleiknum við ÍBV, en þessi tvö lið höfðu verið að berjast um titilinn í allan vetur og ÍBV haft betur framan af vetri. Strákarnir spiluðu gríðarlega vel þann leik og sett var í lás í vörn og marki. Strákarnir fögnuðu gríðarlega í leikslok. En eftir þennan glæsilega sigur var eins og okkar menn væru ekki alveg komnir niðrá jörðina því þeir töpuðu á móti Selfoss og því dugði ekkert annað en sigur í síðasta leik gegn samherjum þeirra í Fram1 úr Grafarholtinu. Sá leikur byrjaði nokkuð erfiðlega og var jafnt i hálfleik, en í síðari hálfleik tóku strákarnir öll völd á vellinum og sigruðu. Þar með tryggðu þeir sér sigur í mótinu sem þýddi að þeir höfðu einnig sigrað heildarstigakeppnina og voru því Íslandsmeistarar. Glæsilegur endir á frábærum vetri hjá strákunum. Þeir enduðu í 3.sæti á fyrstu þremur mótum vetrarins en óxu eftir því á leið veturinn og kláruðu tvö síðustu mótin með því að lenda í 1.sæti. Liðið er að mestu leiti skipað strákum af yngra ári og verða því með í baráttunni á næsta ári.
C-lið 5

Á mynd: Sissi þjalfari, Óliver, Steinar, Theódór, Ágúst, Ragnar, Pétur, Unnar (á myndina vantar Emil)
Liðið spilaði í 2.deild eftir að hafa verið að spila gríðarlega erfiða leiki í 1.deild á síðasta móti. Strákarnir hristu af sér sjóferðina og unnu fyrsta leikinn gegn Haukum nokkuð örugglega. Næst fylgdu tvö töp á móti tveimur liðum KR, bæði með minnsta mun eða einu marki. Að lokum unnu strákarnir auðveldlega lið Vals þar sem vörnin var rosaleg framan af leik en strákarnir gáfu svo eilítið eftir þegar leið á leikinn. Niðurstaðan var 3.sæti á eftir báðum KR liðunum sem strákarnir höfðu verið sárgrætilega nærri að vinna. Í Þessu móti voru allir strákarnir í þessu liði á yngra ári og meirihlutinn af þeim byrjaði að æfa í vetur. Það hefur verið gríðarlega skemmtilegt að fylgjast með þessum strákum í vetur, hafa tekið gríðarlegum framförum og leggja sig alltaf 100% fram.
Fleiri myndir af mótinu:



















