Content

11.6.2009

Esjuganga Almenningsdeildar FRAM


Það var fríður hópur karla, kvenna og barna úr almenningsdeild FRAM sem gekk á Esjuna í síðustu viku.  Hópurinn var klæddur upp í FRAM boli svo ekki færi á milli mála hverjir væru á ferðinni og það var glæsileg sjón að sjá bláan FRAM-orm liðast upp eftir hlíðum Esju. Hópnum gekk vel á fjallinu enda flestir í góðu formi eftir æfingar vetrarins, allilr skiluðu sér upp að  "Steini" og margir fóru alla leið á toppinn, þar á meðal þessir

ungu og frísku drengir sem báru með sér 16 kílóa kétilbjöllur alla leið upp á topp til þess eins að taka létta æfingu á Esjunni.   Almennigsdeild FRAM stendur saman af hressu fólki á öllum aldri og gaman að sjá hvað þessi deild er drífandi og tilbúinn að brydda upp á skemmtilegum uppákomum eins og þessari.  Ef til vill verður gengið á fleiri fjöll í sumar en það verður þá kynnt síðar.


Svo er það þessi sem fær aldrei nóg.  Hilmar á séræfingu.

Almenningsdeild FRAM


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l