Hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur gert samkomulag við foreldraráð og börnin í 5. flokki kvenna og karla um að þau taki að sér að sjá um hreinsun á völdum götu í Grafarholti. Göturnar eru Gvendargeisli og Kristnibraut. Á móti fá börnin styrk sem rennur í sjóð vegna fyrirhugaðra keppnisferða innan lands á þessu ári.

Mynd:
Undir samkomulagið rituðu Óttarr Guðlaugsson formaður hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals, Hjördís Rúnarsdóttir fulltrúi foreldraráðs 5. flokks kvenna og Helga B. Eiríksdóttir fulltrúi foreldraráðs 5. flokks karla. Auk þeirra eru á myndinni Aðalsteinn Aðalsteinsson, Birna K. Jónsdóttir, Egill Hlér Guðjónsson, Þórdís Einarsdóttir, Jenny Júlíusdóttir, Kristín Vilbergsdóttir, Jóna Dís Þorleifsdóttir og Hafdís Hrönn Óttarsdóttir.