Knattþrautir KSÍ voru kynntar fyrir krökkum í 5. flokki karla og kvenna hjá Fram í Grafarholtinu í gær. Krakkarnir í Safamýrinni komu í heimsókn og sameinuðu þannig alla iðkendur FRAM í 5. fl. karla og kvenna. Gunnar Einarsson, sem hefur yfirumsjón með knattþrautunum, heimsótti FRAM og fór yfir knattþrautirnar með iðkendum og þjálfurum.
Gunnar kynnir knattþrautirnar einu sinni á hverjum stað fyrir sig og þjálfurum á viðkomandi stöðum er síðan ætlað að láta iðkendurna spreyta sig oftar yfir sumarið. Þjálfari hvers flokks heldur utan um þátttöku og sendir upplýsingar til KSÍ. Þeir iðkendur sem taka þátt í knattþrautunum a.m.k. þrisvar sinnum í sumar fá sent viðurkenningarskjal frá KSÍ. Þjálfarinn sér um að senda nöfn viðkomandi.
Knattþrautir KSÍ 2009
Aðalmarkmiðið með knattþrautum er að fá börn til að vera dugleg að æfa knatttækni sína og fá þjálfara til að leggja áherslu á tækniþjálfun í þjálfuninni hjá sér. Knattþrautirnar eru hannaðar til að hjálpa leikmönnum að bæta tækni, knattrak, skallatækni, sendingar og skottækni svo eitthvað sé nefnt.
Flott framtak hjá KSÍ og þökkum við FRAMarar fyrir okkur, svo er bara að fara að æfa sig á þrautunum í sumar.