Content

7.7.2009

5. fl. ka. stóð sig vel á N1 mótinu á Akureyri

Það var mjög gott veður hjá okkur alla helgina eins og alltaf á Akureyri að sögn heimamanna. Við áttum frábært mót og hefur sjaldan eða aldrei verið eins góður  árangur frá Fram á N1 móti. Strákarnir voru tilbúnir í baráttuna frá fyrstu spyrnu og voru tilbúnir að leggja sig alla fram í verkefnið. Liðið var búið að undirbúa sig mjög vel fyrir mótið og vissum við að vellirnir væru minna og leiktíminn styttri og voru við því með aðeins öðruvísi áherslur heldur en á íslandsmótinu og fóru leikmenn vel eftir fyrirmælum. Stemningin var góð í hópnum og voru strákarnir félaginu til mikilar sóma á Akureyri.
Það má segja að allt gekk nánast upp hjá okkur á þessu móti og vorum við að vinna marga 50-50 leiki, þar sem það lið sem er tilbúið að leggja aðeins meira á sig vinnur oftast. 

Öll liðinn okkar komust í 8.liða úrslit og komust C og E liðinn í úrslitaleikina.  Það var mikil upplifun fyrir strákana þar sem þeir hafa sjaldan verið eins mikið í sviðsljósinu á íþróttaviðburð. Fyrir leik var spilaður þjóðsöngurinn og ef vel var gáð þá sást smá stress í bland við eftirvæntingu í andlitum strákana. C liðið beið lagri hlut eftir hetjulega baráttu við Þrótt en E-liðið náði að sigra sterkt lið Hauka og náðu sér í gullið.  B og D liðin áttu frábær mót og eru 6. og 7.sæti frábær árangur

Hér er svo gengi Fram á mótinu
B-lið 5 sigrar 2 jafntefli og 3 töp  7.Sæti
C-lið 9 sigrar 1 tap    2.sætið
D-lið 6 sigrar 3 töp   6.sæti
E-lið 9 sigrar 1 jafntefli 1.sæti
samtals 29 sigrar 3 jafntefli og 7 töp.
Hægt er að sjá nánar um hvert lið á http://www.ka-sport.is/n1motid/

Við Framarar fórum því með 3 bikara með okkur heim(tvo eignar og einn sem við reynum bara aftur við á næsta ári).  Allir strákarnir eiga þessa bikara og mega vera stoltir af sinni framgöngu á mótinu.

Ég vill þakka öllu því frábæra fólki sem kom nálagt liðinu með einum eða öðrum hætti um helgina en án þeira væru örugglega sumir strákarnir enþá sofandi á akureyri, sársvangir, eða að leita af sokkunum sínum.

Kveðja Siggi og Steini



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l