Content

10.8.2009

Framarar lyftu gullbikar á Rey-cup

Framarar lyftu gullbikar á ReyCup

Strákarnir í 4. flokk Fram gerðu sér lítið fyrir á ReyCup mótinu í Laugardal á dögunum og unnu í flokki b-liða. Unnu alla sína leiki, alls sex að tölu, og fengu aðeins tvö mörk á sig, skoruðu ellefu stykki. Framarar náðu sér ekki alveg á strik í 3. flokki karla og 4. flokki kvenna, en þar var Fram með sameiginlegt með Haukum.

Í 4. flokki léku Framarar til úrslita gegn FH-ingum, sama liði og þeir lögðu að velli í riðlakeppninni, 4-2, klukkan átta að morgni föstudagsins. Er enginn vafi á að léttur morgunmatur sem nokkrir framtakssamir foreldrar útbjuggu í Fram-heimilinu fyrir leik skipti miklu úti á vellinum, enda sáu FH-ingar aldrei til sólar. Var búist við þeim dýróðum til leiks í úrslitunum á sunnudeginum en Framarar létu ekkert slá sig útaf laginu. Sigurður Þráinn skoraði tvö góð mörk í fyrri hálfleik en var tekin útaf í hálfleik til að fara í fermingarveislu sína. Félagar hans héldu þeim mun til leiksloka, m.a. með snilldarmarkvörslu Sigurðar Þorsteinssonar

Leikgleðin var í fyrirrúmi hjá piltunum og saman náðu þeir frábærum árangri. Til hamingju með gullið, strákar!



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l