Content

2.9.2009

Í minningu Halldórs G. Lúðvíkssonar

Halldór G. Lúðvíksson, heiðursfélagi í FRAM lést þann 22. ágúst síðastliðinn og verður jarðsettur í dag kl. 13:00.



Íþróttahreyfingin er vafalítið mestu fjöldasamtök á Íslandi. Stærstu íþróttafélög landsins hafa á að skipa hundruðum iðkenda og öðrum eins fjölda stuðningsmanna, aðstandenda og fjölskyldna keppnisfólks. En þrátt fyrir allan þennan aragrúa af fólki, reynist vinnan við rekstur félaganna oft og tíðum hvíla á herðum ótrúlega fárra. Og þegar betur er að gáð reynast oft fáeinar fjölskyldur bera hitann og þungann af starfinu.

Halldór G. Lúðvíksson tilheyrði slíkri fjölskyldu. Faðir hans, Lúðvík Þorgeirsson kaupmaður, var í hópi þeirra manna sem blésu lífi í Knattspyrnufélagið Fram árið 1928 þegar minnstu mátti muna að félagið lognaðist út af. Síðar varð Lúðvík formaður Fram og sömu sögu má segja um þrjá móðurbræður Halldórs: Ólaf, Guðmund og Sigurð Halldórssyni.

Lúðvík Þorgeirsson stofnsetti verslunina og fjölskyldufyrirtækið Lúllabúð, sem var í hugum margra Reykvíkinga órofa tengd Fram. Bræðurnir Halldór, Þorgeir og Birgir Lúðvíkssynir léku um árabil með meistaraflokki Fram í knattspyrnu og urðu meðal annars Íslandsmeistarar sumarið 1962. Komst Halldór þá í þann fámenna úrvalsflokk sem orðið hefur Íslandsmeistari í tveimur flokkaíþróttum í meistaraflokki, en hann var markvörður fyrsta meistaraliðs Fram í handknattleik árið 1950.

Keppnisferill Halldórs G. Lúðvíkssonar var glæsilegur og ef til vill hefur enginn íslenskur knattspyrnumaður leikið jafn margar stöður á vellinum, en hann var jafnvígur í sókn, vörn og í marki. Prúðmennskan var einkenni hans á leikvelli. Halldór kærði sig heldur ekki um að vera í sviðsljósinu.

Öfugt við ýmis skyldmenni sín gegndi Halldór G. Lúðvíksson ekki miklum formlegum embættum fyrir Knattspyrnufélagið Fram, sat hvorki í stjórnum né nefndum. Engu að síður sinnti hann mikilvægu félagslegu hlutverki. Hann var um árabil kaupmaður í fjölskyldufyrirtækinu Lúllabúð, sem þjónaði öðrum þræði hlutverki félagsheimilis Framara. Þar komu menn saman til skrafs og ráðagerða. Þar voru seldir miðar á hvers kyns skemmtanir félagsins. Og þaðan lögðu skíðamenn félagsins stundum af stað í fjallaferðir sínar. Þá má geta þess að Lúllabúð var um árabil einhver helsti sölustaður getraunaseðla fyrir Fram, en sú tekjulind mátti heita lífæð íþróttastarfs í landinu.

Á níutíu ára afmæli Fram, árið 1998, var Halldóri veitt æðsta viðurkenning félagsins og hann gerður að heiðursfélaga. Knattspyrnufélagið Fram sér nú á eftir einum sinna bestu sona og er ástvinum hans vottuð samúð vegna fráfalls hans.

F.h. Knattspyrnufélagsins Fram,

Stefán Pálsson.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l