13.10.2009
Herra & Kvennakvöld FRAM!
Herrakvöld FRAM verður haldið föstudaginn 13. nóvember í veislusal okkar Framara
Frábær skemmtun þar sem ræðumaður er engin annar en Atli Gíslason alþingismaður. Jóhannes Haukur Jóhannesson Hellisbúi sem fer með gamanmál eins og honum einum er lagið.
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Happdrættið og málverkauppboðið verður á sínum stað undir styrkri stjórn Sigurðar Inga Tómassonar.
Þóra okkar sér um að allir væti kverkarnar reglulega þannig að nú er bara að mæta.
Takið kvöldið frá !
Boðið verður upp á frábært hlaðborð frá Laugaási
Allir karlar, Framarar, ungir, gamlir, það verður gríðarleg stemming eins og alltaf.
Miðasala í Íþróttahúsi Fram - pantið í síma 533 5600 - miðaverð kr. 6500.- sjáumst hressir
Kvennakvöld FRAM verður haldið laugardaginn 14. nóvember í veislusal okkar Framara
Miðasala er hafin á Kvennakvöld Fram og kostar miðinn kr. 4000.- Innifalið er fordrykkur, matur og frábær skemmtiatriði,einnig verða seldir happdrættismiðar þar sem vinningar eru glæsilegir.
Húsið opnar kl. 19:30.
Hægt er að kaupa miða í Framheimilinu og á netinu.
Reikningsnúmer er 0117-05-68676 kt: 290957-5919. Best er að senda e-mail eða sms til staðfestingar.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá
Soffíu : soffia.bragadottir@landsbankinn.is gsm: 8206856
Sigrúnu : sibragadottir@actavis.com gsm: 8927385
Gyðu : gydamaria@internet.is gsm: 8961085
« Til baka |
Senda á Facebook