Content

28.10.2009

Þrír baráttumenn fallnir frá

Á stuttum tíma hafa þrír miklir Framarar, sem léku saman knattspyrnu í vörninni með meistaraflokki Fram fyrir og eftir 1960, yfirgefið "leikvanginn" -  Geir Kristjánsson, markvörður (F: 16.1 1934 - D: 14.8 2009), Halldór Lúðvíksson (F: 31.10 1930 - D: 22.8 2009) og nú síðastur að kveðja var Rúnar Guðmannsson (F: 14.7 1939), sem lést föstudaginn 9. október, 70 ára. Þessir miklu keppnismenn, sem undirbjuggu sig vel fyrir hverja orrustu, ákveðnir í að láta sitt ekki eftir liggja, urðu að játa sig sigraða, eins og svo margir aðrir, í baráttu við vágest, sem læknavísindin standa ráðþrota gegn. Sterkustu vígi hafa fallið í þeirri baráttu.


Í baráttunni. Rúnar Guðmannsson, Geir Kristjánsson og Halldór Lúðvíksson í leik á Íslandsmótinu gegn Akureyringum á Laugardalsvellinum 1960.

Mjög fjölhæfur íþróttamaður


Rúnar var mjög fjölhæfur íþróttamaður, klæddist landsliðspeysunni í knattspyrnu nýorðinn 19 ára 1958 og landsliðspeysunni í handknattleik í byrjun árs 1959. Hann byrjaði aðeins 17 ára að leika með Framliðinu í knattspyrnu og varð fljótlega einn af bestu knattspyrnumönnum landsins - geysilega fljótur, hafði næmt auga fyrir samleik og las leikinn vel, bæði í knattspyrnu og handknattleik.




 Rúnar tilbúinn í slaginn. Íslenska landsliðið í knattspyrnu sem lék Ólympíuleik gegn Dönum á Laugardalsvellinum 1959 - Ríkharður Jónsson, ÍA, Hreiðar Ársælsson, KR, Örn Steinsen, KR, Þórður Jónsson, ÍA, Sveinn Teitsson, ÍA, Þórólfur Beck, KR, Heimir Guðjónsson, KR, Sveinn Jónsson, KR, Rúnar Guðmannsson, Fram, Garðar Árnason, KR og Hörður Felixson, KR. Þess má geta að Rúnar og Hörður, sem voru nýliðar í sama leiknum í knattspyrnu - gegn Írum 1958, voru einnig nýliðar með landsliðinu í handknattleik þetta ár; léku þá einnig handknattleikslandsleik gegn Dönum.

Rúnar var mikill dýrlingur hjá okkur strákunum á Grettisgötunni - þar sem grimmt voru æfðar "hjólhestaspyrnurnar" sem Rúnar var frægur fyrir, á róluvellinum á móti Grettisgötu 10. Það var mikið áfall fyrir Fram þegar Rúnar varð að leggja keppnisskóna á hilluna aðeins 22 ára 1961, eftir að hafa meiðst illa á hné í leik gegn Dundee frá Skotlandi á Laugardalsvellinum, hnéskel brotnaði og liðbönd tognuðu þegar hann fékk slæmt spark. Rúnar var búinn að leika sex landsleiki í knattspyrnu er hann meiddist og þá missti hann vegna meiðsla sinna af hinu sigursæla tímabili Framliðsins í handknattleik, sem varð fimm sinnum meistari á sjö árum.
Rúnar hætti ekki afskiptum af knattspyrnu er hann lagði skóna á hilluna, hann var t.d. formaður knattspyrnunefndar Fram 1962-1963.

Rúnar sá erfiðasti


Ummæli Þórólfs Beck, eins litríkasta knattspyrnumanns Íslands, um Rúnar, segir allt um þann mikla styrkleika sem Rúnar bjó yfir. Í viðtali við undirritaðan 1985, sagði Þórólfur, sem lék sem atvinnumaður í Skotlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum:
"Ég hef leikið gegn mörgum snjöllum knattspyrnumönnum. Erfiðasti leikmaðurinn sem ég hef leikið gegn var Rúnar Guðmannsson, hinn sterki miðvörður Framliðsins. Rúnar var snöggur og sprettharður. Þá var hann með góðar staðsetningar og snjall í loftinu. Það voru ekki margir sem unnu skallaeinvígi gegn honum."


Tveir góðir. Bjarni Felixson, KR, og Rúnar Guðmannsson í æfingabúðum með landsliðinu í knattspyrnu á Laugarvatni 1959.


Skoraði fyrsta sirkusmarkið á Íslandi


Já, Rúnar var mjög öflugur skallamaður og hann vann það afrek í einum kappleik í handknattleik á gamla Hálogalandi, að skora mark með skalla, eftir að félagi hans Guðjón Jónsson, sem var einnig landsliðsmaður í handknattleik og knattspyrnu, sendi knöttinn inn í vítateig andstæðinganna. Rúnar stökk þá inn í teiginn og hamraði knöttinn í netið með skalla - skoraði glæsilegt mark. Þannig tilburðir höfðu ekki sést í íslenskum handknattleik og fagnaðarlæti urðu mikil hjá áhorfendum, sem kunnu að meta þetta fyrsta sirkusmark í sögu handknattleiksins á Íslandi.

Eplið og eikin


Þess má geta að Jón Árni, sonur Rúnars, fetaði í fótspor hans og lék handknattleik með Fram og klæddist landsliðsbúningnum þrisvar 1985. Dóttursonur Rúnars og nafni Rúnar Kárason, sem lék með Fram í handknattleik áður en hann gerðist leikmaður með Füchse Berlín eftir sl. keppnistímabil, hefur leikið 10 landsleiki síðan hann klæddist landsliðspeysunni fyrst 2008, eða 49 árum eftir að afi hans lék fyrst með landsliðinu í handknattleik gegn Danmörku í Slagelse 12. febrúar 1959.
Það má því með sanni segja að máltækið; Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, eigi hér við.

Knattspyrnan á Íslandi hefði orðið fátæklegri án Geirs, Halldórs og Rúnars - þeir mörkuðu djúp spor í sögu Fram og íslensku knattspyrnunnar. Blessuð sé minning þeirra.

Útför Rúnars verður gerð frá Háteigskirkju í dag, miðvikudaginn 28. október, kl. 11.

Sigmundur Ó. Steinarsson


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l