Content

17.11.2009

Baldur Skafta heiðraður á herrakvöldi FRAM

Herrakvöld FRAM var haldið í 25 sinn föstudaginn 13. nóv. 

Eins og venjulega var glatt á hjalla og alltaf gaman þegar svo margir FRAMarar hittast og gera sér glaðan dag.
Eins og venjulega var  Sigurður Ingi Tómasson veislustjóri og sá um að allt færi að settum reglum og samkvæmt hefð, ræðumaður, skemmtikraftur , happadrætti og málverka uppboðið var allt á sínum stað ásamt  matnum  sem var frábær að venju  og
kom frá þeim feðgum á Laugaási

.


Það sem var óvenjulegt að þessu sinni var að Baldur Skaftason sem þjálfaði marga unga drengi hjá FRAM hér á árum áður var heiðraður sérstaklega af drengjum fæddum á bilinu 1961-63. Kölluðu þeir Baldur upp og færðu honum smá þakklætisvott fyrir óeigingjarnt og  skemmtilegt  samstarf í yngri flokkum FRAM.


Baldur Skafta og strákarnir

Herrakvöldið gekk vel að þessu sinni og skemmtu menn sér vel  að vanda og allt fór vel FRAM.


Nokkrir flottir FRAMarar

 

Kærar þakkir fyrir kvöldið  og sjáumst að ári.

 

Knattspyrnufélagið FRAM



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l