6.flokkur karla hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur. Nýafstaðin eru mót bæði hjá yngra og eldra árinu auk þess sem veitt voru mætingarverðlaun bæði fyrir október og nóvember.
Yngra ár
Yngra árið gerði sér lítið fyrir og vann 2.deildina nokkuð örugglega. Liðið vann alla sína leiki og urðu sigrarnir stærri eftir því sem leið á mótið. Það bendir til þess að liðið hafi stöðugt verið að taka framförum eftir sem á leið mótið. Strákarnir eiga því strembið verkefni fyrir hönum í janúar þegar þeir spila í 1.deild og mæta þar öllum sterkustu liðunum.

Eldra ár
Eldra árið spilaði síðan viku seinna á móti hjá sem var haldið á Akureyri. Þar var mikið stuð alla helgina hjá þeim, auk leikjanna voru haldnar kvöldvökur, diskótek og fleira. Spilamennskan gekk nokkuð vel, tvö lið voru send til leiks frá Safamýri. Lið 1 lék í 2.deild A, þeir unnu fyrstu fjóra leiki sína nokkuð örugglega en þurftu að lúta í gras fyrir sterku liði Gróttu í hreinum úrslitaleik um sigur í deildinni og lenti í 2.sæti. Því þurfa þeir aðra tilraun í janúar til þess að komast í hóp þeirra bestu. Lið 2 lék í 3.deild, þar töpuðu þeir sínum fyrsta leik gegn Fylki1 í brjálaðri stemmingu í KA-húsinu. Eftir þann leik bættu strákarnir sig stöðugt og unnu alla fjóra leiki sína eftir það, þar á meðal sterkt lið KA sem sigraði síðan Fylki1. En vegna innbyrðisviðureignar þurftu strákarnir í Liði 2 að sætta sig við 2.sætið líkt og Lið 1 í sinni deild.
Mætingarverðlaun
Mætingaverðlaun voru veitt nýlega bæði fyrir október (í seinna lagi) og fyrir nóvembermánuð. Þessi hefð var tekin upp á síðasta ári í 6.flokki. Hún reyndist heldur betur vel, þá mættu flest allir gríðarlega vel og sýndu mikinn metnað sem er jú lykillinn að góðum árangri. Mætingin hefur einnig verið mjög góð það sem af er vetri.
Fyrir októbermánuð fengu þeir Hörður Egill Guðmundsson og Pétur Björnsson verðlaun fyrir bestu ástundunina. Þeir voru áberandi með bestu mætinguna þennan mánuðinn og leggja sig alltaf alla fram á hverri einustu æfingu. Strákarnir fengu flottan bol frá Henson og þökkum við Henson kærlega fyrir að leggja til verðlaunin. Hinn efnilegi leikmaður meistaraflokks Arnar Birkir Halfdánsson afhenti strákunum verðlaun.

Mætingaverðlaunin fyrir nóvember hlutu þeir Aron Elí Ellertsson og Einar Marteinn Einarsson. Þar var samkeppnin öllu harðari og voru fleiri sem komu til greina. Aftur fengu þeir verðlaun frá Henson. Línumaðurinn geðþekki Haraldur Þorvarðarson veitti strákunum verðlaunin og hvatti þá til dáða að vera áfram duglegir að æfa.

Hér eru nokkrar myndri af yngri strákunum í móti á dögunum. Gleðileg Jól.







