FRAMBÓKIN Knattspyrnufélagið FRAM í 100 ár er komin
Bókin er stór glæsileg 400 blaðsíðna bók þar sem höfundurinn Stefán Pálsson fer um víðan völl í sögu félagins, þar veltir hann mörgun steinum og grefur upp stórskemmtilegar sögu og frásagnir úr 100 ára sögu félagins ásamt því taka viðtöl og birta myndir. Mikið magn mynda er í bókinn og gefur það sögunni og bókinni enn meira gildi.

Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu bókarinnar sem sérlega vel heppnuð og erum við FRAMarar mjög stoltir að þessari bók.

Bókin var formlega afhent í prentsmiðjunni Odda 30 apríl síðast liðin og tóku höfundurinn Stefán Pálsson og Steinar Þór Guðgeirsson formaður FRAM við bókinni en Odda menn voru mjög stoltir af því að framleiða jafn glæsilega bók.

FRAMbókin er nú komin í almenna sölu og geta áhugasamir keypt bókina í Íþróttahúsi FRAM og á skrifstofu FRAM í Grafarholti alla virka daga, bókin kostar kr. 5900.-
Algjör skildu eign allra FRAMara og til valinn jólagjöf.