Flugeldasala FRAM hefur verið starfrækt í vel yfir 30 ár. Flugeldasalan er stærsta fjáröflunarleið handknattleiksdeildar FRAM og skiptir sköpum að hún gangi vel fyrir rekstur meistaraflokka FRAM.
FRAM tók þátt á Evrópukeppni í bæði karla og kvenna flokki nú í vetur og var það kostnaðar samt verkefni.
Við viljum því minna á flugeldasölu FRAM nú um áramótin og hvetja alla FRAMara að styðja félagið og kaupa flugeldana hjá FRAM.
Við höfum alltaf verið með fjölbreytt vöruúrval og gott verð. Kaupauka fyrir þá sem kaupa fyrir kr. 10.000.- eða meira auk fleiri tilboða.
Salan fer fram í íþróttahúsi FRAM Safamýrinni eins og vanalega .
Allar gerðir af rakettum, litlar og stórar tertur, blys, gos og knöll.
Þrjár stærðir af fjölskyldupokum og margt, margt fleira.
Flugeldasalan er opin alla daga fram að áramótum í FRAMhöllinni, SAFAMÝRI 26, Íþróttahúsi FRAM, gengið inn að sunnan, milli gervigrasvallar og íþróttahúss.
|
Mánud. 28. des.
|
frá kl. 12:00 til 22:00
|
|
Þriðjud. 29. des.
|
frá kl. 12:00 til 22:00
|
|
Miðvikud. 30. des.
|
frá kl. 11:00 til 22:00
|
|
Fimmtud. 31. des.
|
frá kl. 10:00 til 16:00
|
Stöndum sama og styðjum félagið okkar.
ÁFRAM FRAM