Stella Sigurðardóttir var valinn íþróttamaður FRAM 2009 og jafnframt fyrst konan til að hljóta þennan titil.
Stella Sigurðardóttir er lykilmaður í lið FRAM. Liðið varð Reykjavíkurmeistari, deildarbikarmeistari og komst í úrslitaleikina á Íslandsmótinu síðastliðið vor. Stella er einnig ávallt boðinn og búinn að aðstoða við ýmis félagsstörf, þjálfar unga leikmenn hjá FRAM ásamt því að vinna við sumarskóla FRAM. Stella er því vel að tiltlinum komin og glæsileg íþróttakona FRAM 2009.
Knattspyrnufélagið FRAM óskar Stellu hjartanlega til hamingju með titilinn