Content

5.1.2010

Jólatrjáasöfnun FRAM á laugardag.

– Fjáröflun fyrir Fram –

 

Framarar munu standa fyrir fjáröflun laugardaginn 9. janúar næstkomandi þar sem áhugasömum gefst kostur á að losa sig við jólatréð við Framheimilið í Safamýri, við Hvassaleitisskóla og við skrifstofu FRAM í Grafarholti (Kirkjustétt) milli klukkan 09:00-18:00. Förgunargjald verður 1.000 kr. pr. jólatré.  

Vakin er athygli á því að Reykjavíkurborg mun ekki safna saman jólatrjám við lóðar­mörk eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Þennan sama dag munu börn úr Fram ganga í hús í hverfinu og safna dósum. Þeir sem eiga erfitt með að koma jólatrénu niður í Framheimili, Hvassaleitisskóla eða Kirkjustétt  eiga kost á því að biðja dósasafnara um að koma því þangað gegn kr. 1000.- gjaldi.

Einnig má hringja samdægurs í síma 618-6814 v/Safamýri og í síma 663-0551 v/Grafarholt  og óska eftir að jólatréð verði sótt.

Með því móti losnar þú við jólatréð, styrkir Fram og styður við uppgræðslu en jóla­trén verða kurluð niður og notuð í moltugerð. 



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l