Content

26.1.2010

Pistill frá þjálfara 4. fl. karla í handbolta

Mér finnst við hæfi að skrifa smá pistil um strákana og segja frá hvernig gengið hefur verið hjá þeim hingað til.

Þegar við byrjuðum í haust var ljóst að um frábæran hóp var að ræða. Eldra árið urðu meistarar í fyrra og yngra árið er einnig með mjög gott lið. Þegar aðeins var liðið á haustið sáum við að við þyrftum að bæta þriðja liðinu við vegna fjölgunar í flokknum. Þessi fjölgun kom til vegna nokkurra stráka sem ákváðu að byrja í handbolta en einnig vegna þess að nokkrir komu til okkar frá öðrum félögum.  Vegna þessa var ljóst að ég þyrfti aðstoðarmann með mér og var Bjarki Bóasson ráðinn sem aðstoðarþjálfari flokksins.

Strákarnir eru sem stendur við toppinn í öllum liðum í deildarkeppninni sem verður að teljast frábær árangur en ásamt því eru þeir að standa sig frábærlega í bikarkeppninni en þar eigum við tvö lið í undanúrslitum en það er glæsilegt ekki síst vegna þess að annað liðið er að megninu til skipað yngra árs strákum.

Þriðja liðið okkar er að nokkru leyti skipað strákum sem byrjuðu iðkun nú í vetur og svo hafa nokkrir galvaskir 5.fl. strákar spilað með liðinu og er árangurinn langt framar vonum að mínu mati. Miklar framfarir eru í gangi þar á bæ sem er mjög ánægjulegt og eins og ég sagði framar í pistlinum eru þeir við toppinn í sinni deild.

Nokkrum sinnum í vetur hefur unglingalandslið skipað leikmönnum 16 ára og yngri æft saman og þar eigum við slatta af strákum úr þessum flokki og fá lið sem státa af svona mörgum unglingalandsliðsmönnum.

Framtíðin í félaginu er sannarlega björt þegar við státum af svona flottum drengjum og er engin vafi í mínum huga að um framtíðar meistaraflokksmenn og kannski landsliðsmenn er að ræða þarna innan um.

Árangurinn hefur verið flottur hingað til bæði í leikjum og hjá strákunum sjálfum og maður sér nánast framfarir á hverri æfingu sem er mjög ánægjulegt. Tímabilið er nú samt rétt hálfnað og nóg af leikjum og framfaraskrefum framundan.

Að lokum vil ég minnast á alla þá foreldra sem koma að starfinu í 4.fl. en þar er á ferðinni hörku teymi sem styður við bakið á strákunum sínum og taka virkan þátt í öllu sem liðið tekur sér fyrir hendur innan sem utan vallar.   

Kv. Haraldur þjálfari     

Myndir eru teknar af www.123.is/frammyndir höfundur Jói Kristins.  Þar er að finna fullt af skemmtilegum FRAM myndum.   


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l